Ég ætla mér að verða heimsmeistari Henry Birgir Gunnarsson skrifar 21. nóvember 2016 06:30 Valgerður er hér sigri hrósandi eftir bardagann. mynd/árni torfason „
Mér líður rosalega vel. Mjög sátt eftir góða uppskeru,“ segir Valgerður Guðsteinsdóttir himinlifandi er íþróttadeild heyrði í henni frá Svíþjóð í gær. Hún var þá enn í sjöunda himni eftir frábæra byrjun á atvinnumannaferli hennar. Hún mætti þá hinni sænsku Angelique Hernandez sem var að keppa sinn þriðja atvinnumannabardaga. Hún hafði unnið einn bardaga og tapað einum. Annað tapið kom í Stokkhólmi á laugardag því hún átti aldrei möguleika gegn valkyrjunni frá Íslandi. Það var ekki að sjá neitt stress á okkar konu sem tók strax völdin í bardaganum og kýldi Hernandez niður í fyrstu lotu. Yfirburðir Valgerðar héldu áfram út bardagann og hún vann yfirburðasigur á stigum. „Það er búinn að vera langur andlegur undirbúningur og stífar æfingar síðustu vikur. Þetta er ákveðinn léttir og mér líður vel að hafa uppskorið nákvæmlega eins og ég vildi,“ segir Valgerður en það var ekkert stress í henni í Stokkhólmi. „Mér leið mjög vel er ég labbaði inn í hringinn. Ég var ótrúlega glöð og gat ekki hætt að brosa. Ég var svo ánægð yfir því að þetta væri loksins að gerast. Það var smá jákvætt stress sem vann með mér,“ segir Valgerður og skellir upp úr er hún rifjar upp þessa eftirminnilega stund. Hún fylgdi því eftir með flottri frammistöðu eins og áður segir. „Allar loturnar gengu mjög vel og ég er yfir mig ánægð að hafa sýnt svona góða frammistöðu. Ég kýldi hana tvisvar niður. Það skipti mig engu máli hvort ég kláraði hana á stigum eða rothöggi. Það sem mér fannst skipta máli var að sýna góða frammistöðu. Ég gerði hana strax hrædda við mig.“Valgerður leggur mikið á sig og æfir stundum 2-3 á dag.mynd/snorri björnssonEins og gefur að skilja var mikið spennufall eftir bardagann en hvernig hélt hún upp á sigurinn? „Við fórum út að borða. Ég fékk mér góða nautasteik og sósu. Það hefur verið lítið um sósur síðustu vikur. Svo var bara slakað á áður en ég sofnaði vel. Það var mjög gott.“ Valgerður er 31 árs gömul og er búin að æfa hnefaleika síðan í lok ársins 2009. „Ég sá að þetta var íþrótt sem myndi henta mér vel. Þetta er spennandi og krefjandi íþrótt. Allt sem fær mig til að vaxa finnst mér heillandi. Ég reyni að taka áskorunum,“ segir Valgerður en hún spilaði fótbolta sem barn en svo ekkert þar til hún fór í hnefaleikana. Hún keppti ellefu áhugamannabardaga á sex árum og það gekk vel hjá henni. Valgerður sá þá að hún hefði erindi í að fara lengra í íþróttinni. „Ég er búinn að hugsa alvarlega um þetta í tvö ár. Það krefst mikils undirbúnings ef maður vill gera þetta vel og þá er betra að bíða aðeins og vanda til verka. Ég er að æfa mjög mikið. Tvisvar og stundum þrisvar á dag. Ég reyni samt að æfa skipulega og skynsamlega. Ég er líka í tveimur vinnum þannig að þetta tekur allan minn aukatíma,“ segir Valgerður sem er gift en barnlaus. Þau hjónin eru með hund sem Valgerður segist ætla að sinna vel er hún kemur heim. Eiginmaðurinn var með henni úti er hún keppti. „Hann er spenntur þegar ég keppi en hann veit alveg hvað ég get. Hann hefur því ekki miklar áhyggjur af mér í hringnum.“ Valgerður á sér stóra drauma og fer ekkert leynt með það. „Ég er búin að sýna mig og sanna og held að ég eigi að fá góðan bardaga næst. Ég ætla mér alla leið í þessu og það er heimsmeistaratitill. Ég á alveg góðan möguleika á því. Ég hef mikla trú á mér.“
Box Mest lesið Stríðinn hrafn fluttur á Laugardalsvöll Fótbolti Barcelona Spánarmeistari Fótbolti Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Enski boltinn Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Íslenski boltinn Ólympíumeistarinn hallar sér að Jesú og fjölskyldunni í kjölfar handtöku Sport „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Handbolti Fjórtán slösuðust þegar ekið var á áhorfendur Fótbolti Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Kópavogsvelli, Knicks geta sent Celtics í sumarfrí og PGA Sport Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Körfubolti Fleiri fréttir Ronaldo langtekjuhæsti íþróttamaður heims Fjórtán slösuðust þegar ekið var á áhorfendur Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Stríðinn hrafn fluttur á Laugardalsvöll Ólympíumeistarinn hallar sér að Jesú og fjölskyldunni í kjölfar handtöku Dagskráin í dag: Risaleikur á Kópavogsvelli, Knicks geta sent Celtics í sumarfrí og PGA Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR „Ég hafði góða tilfinningu fyrir þessum leik“ „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Bikarævintýri Fram heldur áfram Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Daníel Tristan skoraði í svekkjandi jafntefli Barcelona Spánarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið Markamaskínan Tokic og margfaldur Íslandsmeistari í 5. deildina EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Glódís fær nýjan þjálfara Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Styrkir til strákanna í Fylki og Selfossi úr minningarsjóði Egils Hrafns „Get lofað því að við erum ekki að fara að spila eins og KR“ „Elska að horfa á FH“ Agla María snýr aftur í landsliðið Blaðamannafundur KSÍ: Þorsteinn tilkynnti hópinn Þrír frá Liverpool og tveir frá Forest tilnefndir sem leikmaður ársins Sjá meira