Ef Neymar mætti velja einn leikmann úr Real Madrid væri það ekki Ronaldo Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. desember 2016 13:00 Já, svona er þetta bara. vísir/getty
Cristiano Ronaldo vann Gullboltann í vikunni í fjórða sinn á ferlinum. Hann er ríkjandi Evrópumeistari með Real Madrid og Portúgal og verður líklega kjörinn besti fótboltamaður heims eftir áramót. Hann er samt ekki sá leikmaður í Real Madrid sem Neymar, leikmaður Barcelona, myndi velja úr Madrídarliðinu ef hann fengi að taka einn yfir til Katalóníu. Brassinn myndi heldur ekki velja hina tvo meðlimi BBC-þríeykisins; Gareth Bale og Karim Benzema. Sá maður sem hann langar að vera með í liði er samherji hans í brasilíska landsliðinu, Marcelo. „Ég myndi velja Marcelo. Af hverju? Því hann er vinur minn. Ég myndi ekki einu sinni taka Ronaldo úr Real Madrid fram yfir hann. Marcelo er maðurinn sem ég myndi velja,“ segir Neymar í viðtali við CNN. Fjölmiðlar hafa gert mikið úr samkeppni framherjatríóanna í stórliðum spænska boltans; MSN (Messi, Suárez, Neymar) hjá Barcelona og BBC (Benzema, Bale, Cristiano Ronaldo) hjá Real Madrid. Neymar ber mikla virðingu fyrir kollegum sínum hjá Real og fer því fínt í að segja að hann og sínir félagar eru betri. „Ég vil ekki vera að segja hvort þríeykið mér finnst betra því ég er ekki þannig. Ég myndi aldrei segja að ég væri betri en næsti maður. Tríóið okkar er samt að endurskrifa söguna og mun halda áfram að gera það,“ segir Neymar. „Cristiano Ronaldo er búinn að vinna Gullboltann fjórum sinnum, Bale er að spila vel og Benzema er frábær framherji sem mér finnst vera ofurstjarna. Þetta eru allt stjörnur sem á að virða,“ segir Neymar.
Spænski boltinn Mest lesið „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Enski boltinn Fleiri fréttir Setur magnað met gegn Íslandi og Glódís upp fyrir Katrínu Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Galatasaray sakar Mourinho um rasisma „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Sjá meira