Emil fór meiddur af velli í markalausu jafntefli Udinese Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. desember 2016 21:45 Emil fór meiddur af velli eftir 13 mínútna leik. vísir/getty
Sex leikir fóru fram í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Þetta voru síðustu leikirnir fyrir jólafrí sem stendur til 7. janúar. Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Udinese sem sótti Sampdoria heim. Emil lék þó aðeins í 13 mínútur en hann meiddist í upphafi leiks. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli. Udinese, sem er ósigrað í síðustu fjórum leikjum sínum, er í 10. sæti deildarinnar. Roma minnkaði forskot toppliðs Juventus niður í fjögur stig með 3-1 sigri á Chievo á heimavelli. Juventus á þó leik til góða á Roma. Jonathan de Guzman kom Chievo yfir á 37. mínútu en Stephan El Shaarawy jafnaði metin í uppbótartíma fyrri hálfleik. Á 52. mínútu kom Edin Dzeko Roma í 2-1 með sínu þrettánda deildarmarki í vetur. Diego Perotti gulltryggði svo sigur Roma þegar hann skoraði þriðja mark liðsins úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Napoli, sem er í 3. sætinu, mætti Fiorentina í ótrúlegum leik sem lyktaði með 3-3 jafntefli. Manolo Gabbiadini tryggði Napoli stig þegar hann skoraði úr vítaspyrnu þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Federico Bernardeschi skoraði tvö fyrstu mörk Fiorentina og lagði það þriðja upp fyrir Mauro Zarete. Lorenzo Insigne og Dries Mertens komu Napoli tvívegis yfir en liðið þurfti mark á elleftu stundu til að tryggja sér jafntefli eins og áður sagði.Úrslit kvöldsins: Sampdoria 0-0 Udinese Roma 3-1 Chievo Fiorentina 3-3 Napoli Cagliari 4-3 Sassuolo Palermo 1-1 Pescara Torino 1-0 Genoa
Ítalski boltinn Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Körfubolti Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Handbolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Fleiri fréttir „Danska“ félagið í MLS sigraði ríkjandi meistara í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Sjá meira