Ljóð ungskálda og endurbirt efni Sigurðar Óskars Pálssonar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 20. desember 2016 10:15 Magnús á bæjarrústum Breiðuvíkur þar sem Sigurður Óskar Pálsson ólst upp í nágrenni Borgarfjarðar eystri. Mynd/Minnie Eggertsdóttir
Bók sem allir myndu lesa heitir önnur tveggja nýrra bóka hjá Félagi ljóðaunnenda á Austurlandi. Í henni eru fyrstu ljóð 10 ungra austfirskra höfunda. „Skáldin eru á menntaskólaaldri og þetta eru fyrstu ljóðin sem þau fá birt,“ segir Magnús Stefánsson, formaður Félags ljóðaunnenda á Austurlandi og umsjónarmaður útgáfu þess. Hann segir ungskáldin hafa verið valin í framhaldsskólunum tveimur fyrir austan og fengið tvö helgarnámskeið til að styrkja sig í skáldskapnum og pússa ljóðin.Myndin á bókarkápu er eftir Katalin Karacsony.„Myndlistarkennararnir í sömu skólum leituðu til nemenda sinna um tillögu að kápumynd á bókina og fyrir valinu varð mynd eftir ungverska stúlku, Katalin Karacsony sem er skiptinemi í Menntaskólanum á Egilsstöðum,“ segir Magnús. „Katalin kom í september til landsins og þegar ég hitti hana á degi íslenskrar tungu 16. nóvember spjölluðum við saman á íslensku og skildum fullkomlega hvort annað. Það fannst mér alveg með ólíkindum.“ Þá snúum við okkur að hinni bókinni, Með austangjólunni, eftir Sigurð Óskar Pálsson, skólastjóra og skjalavörð, sem er fyrsta sögu- og frásagnabókin sem félagið gefur út, að sögn Magnúsar. „Efnið hefur birst áður að langmestu leyti, við erum bara að koma því á einn stað,“ upplýsir hann.Félag ljóðaunnenda á Austurlandi var stofnað árið 1996 og hefur gefið út 30 bækur, að þessum nýju meðtöldum. Þar hafa nær eingöngu birst ljóð þar til nú, nema hvað í ritsafni Guðfinnu Þorsteinsdóttur, sem var fimm binda verk, voru sagnaþættir líka. Aðalútgáfan hefur snúist um bókaflokkinn Austfirsk ljóðaskáld sem hófst árið 2001. Honum tilheyra nú 16 bækur, að sögn Magnúsar. „Fyrsta bókin í þeim flokki var eftir Sigurð Óskar. Hún seldist strax upp og við gáfum hana aftur út 2010. Sigurður Óskar var gott ljóðskáld og var sískrifandi, birti greinar í blöðum og tímaritum. Efnið sem við gefum út núna eru smásögur og frásagnir, vel skrifaðar og skemmtilegar. Ég hef verið að lesa upp úr bókinni víða og fengið góð viðbrögð.“Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 20. desember 2016
Menning Mest lesið Einar og Milla eiga von á barni Lífið Lifðu af tvö flugslys sama daginn á Mosfellsheiði Lífið Lærði mikið af öllu hatrinu Lífið Tveggja barna miðaldra móðir sem er sjúk í strákinn Gagnrýni Þjóðin tjáir sig: Fáránlegt fyrirkomulag, stjörnutúlkar og skortur á menningarlæsi Lífið Setja markið á 29. sætið Lífið „Trylltur þynnkuborgari“ slær í gegn á Íslandi og í Svíþjóð Lífið Myndaveisla: Spennustigið óbærilegt þegar VÆB unnu Söngvakeppnina Lífið Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra Lífið „Jákvæð líkamsímynd bjargaði lífi mínu“ Lífið Fleiri fréttir Tvíburabræður með myndlistarsýningu „Hvenær er hægt að leita í óskilamun hjá ykkur?“ Uglumorð, auglýsingar og dauði internetsins Brynhildur hættir í Borgarleikhúsinu Mótsvar til að lifa af andlega og sökkva ekki í hyldýpið Líf og fjör meðal guða og manna Dægradvöl Benedikts meinfýsið rant biturs manns Kennir Instagram mökum að taka almennilegar myndir Úr drullumalli og nornaseiði í listnám í Bandaríkjunum Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira