
Gríðarlegur fjöldi fólks hefur tekið þátt í að leita að Birnu og hefur verið stofnuð sérstök Facebook-síða til að halda utan leitina. Síðast er vitað um ferðir Birnu við Laugaveg 31 klukkan 05:25 aðfaranótt laugardags.
Þá sendi síminn hennar frá sér merki um hálftíma síðar við Flatahraun í Hafnarfirði. Inni á Facebook-síðunni hefur verið sett upp kort þar sem sést hvar leitað hefur verið að Birnu.

Í morgun lýsti lögreglan eftir ökumanni rauðs fólksbíls, sennilega af gerðinni Kia Rio, sem ekið var vestur Laugaveg á móts við hús númer 31. Birna hafði verið á skemmtistaðnum Húrra við Tryggvagötu.
Hún sést svo í eftirlitsmyndavélum ganga ein ein síns liðs austur Austurstræti, Bankastræti og Laugaveg að húsi númer 31. Þar hverfur hún sjónum um klukkan 05:25.
Birna er 170 sentimetrar á hæð, með sítt ljósrautt hár, klippt með topp fram á ennið. Hún var klædd í svartar gallabuxur, gráa peysu og svartan flísjakka með hettu. Þá var hún í svörtum uppreimuðum Dr. Martens skóm.
Móðir Birnu, Sigurlaug Hreinsdóttir, var í viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Biðlaði hún til þeirra, sem mögulega héldu henni í gíslingu, að skila henni. Viðtalið má sjá hér að neðan.
Hér að neðan má sjá myndbönd af Birnu sem faðir hennar deildi á Facebook-síðu sinni í von um að það hjálpi til við leitina.