Innlent

Nauðgaði barn­ungri náfrænku sinni marg­í­trekað

Árni Sæberg skrifar
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi manninn í þriggja ára fangelsi.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi manninn í þriggja ára fangelsi. Vísir/Vilhelm

25 ára gamall karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa á árunum 2014 til 2017 beitt náfrænku sína margvíslegu og grófu kynferðisofbeldi. Hann meðal annars nauðgaði stúlkunni ítrekað og lét hana hafa þvaglát upp í hann. Aldur stúlkunnar er ekki gefinn upp en fyrir liggur hún er enn ekki orðin átján ára.

Dómur Héraðsdóms Reykjaness þess efnis var kveðinn upp í dag. Rétt er að vara við lýsingum á brotum sem fjallað er um í þessari frétt.

Hafi gert allt nema að „ríða henni í rassinn“.

Í dóminum segir að maðurinn hafi verið ákærður í nokkrum liðum fyrir kynferðisbrot gegn stúlkunni framin á tímabilinu ágúst 2014, þegar maðurinn varð fimmtán ára og þar með sakhæfur, til síðla árs 2017. Með háttsemi sinni hafi maðurinn beitt stúlkuna ólögmætri nauðung og nýtt sér yfirburði sína sökum aldurs og þess að hann var náfrændi hennar. Maðurinn og stúlkan séu systkinabörn.

Í fyrsta lagi hafi hann verið ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni, með því að hafa í fjölda skipta haft samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna á þáverandi heimili hennar, á heimili mannsins, í húsi föðurafa þeirra og í ótilgreindri bifreið á óþekktum stað. 

Hann hafi í fjölda skipta haft samræði við stúlkuna, látið hana hafa munnmök við hann og haft munnmök við hana, nuddað kynfæri hennar innanklæða og farið með fingur inn í leggöng hennar, látið hana snerta kynfæri hans og fróa honum, þuklað á brjóstum hennar og kynfærum innan- og utanklæða og kysst hana tungukossum.

Í dóminum er haft eftir stúlkunni að frændi hennar hefði gert allt við hana nema að „ríða henni í rassinn“.

Lét stúlkuna pissa upp í hann

Í öðru lagi hafi maðurinn verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni með því að hafa á heimili sínu áreitt stúlkuna kynferðislega með því að hella mjólk yfir nakin brjóst hennar og sleikja mjólkina af.

Í þriðja lagi hafi hann verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni með því að hafa á heimili stúlkunnar áreitt hana kynferðislega með því að láta hana fara með kynfæri sín yfir andlit hans og pissa í munn hans þar sem hann lá á bakinu.

Þá hafi hann verið ákærður fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að taka og hafa í vörslum sínum nektarmyndir af stúlkunni, sem og myndir af stúlkunni sem hann var búinn að eiga við svo hún liti út fyrir að vera nakin.

Barnaníðsefni og ólögleg skotvopn

Þá segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir að hafa haft í vörslum sínum og hafa skoðað töluvert af barnaníðsefni í fartölvu og farsíma, sem krafist hafi verið upptöku á.

Loks segir að hann hafi verið ákærður fyrir vopnalagabrot fyrir að hafa haft í vörslum sínum svarta skammbyssu af gerðinni Zoraki og svarta gasbyssu, sem lögregla hafi lagt hald á við húsleit á heimili mannsins.

Gekkst við hluta ofbeldisins

Í niðurstöðukafla dómsins hvað sekt mannsins hvað kynferðisbrot gegn stúlkunni varðar segir að maðurinn hafi fyrir dómi neitað sök og færst undan að tjá sig um sakargiftir að öðru leyti. Áður hefði hann neitað sök við skýrslugjöf hjá lögreglu í lok nóvember 2022, en síðan gengist við því hjá lögreglu í lok apríl 2023 að hafa brotið gegnbrotaþola á árunum „2013-2017“ og á því tímabili í allt að fimm skipti veitt stúlkunni munnmök og í mörg skipti, þó færri en tíu, kysst hana tungukossum og káfað á berum brjóstum hennar og píku. 

Hann hafi svo dregið úr þeim framburði og sagst ekki hafa káfað á stulkunni innanklæða og þannig aldrei snert bert hold hennar.

Af frásögn mannsins hjá lögreglu sé ekki ljóst hvort hann hafi gengist við því að hafa brotið gegn stúlkunni á heimili sínu en hann hafi sagt hana hafa verið mikið inni á því heimili. Hann hafi hins vegar þvertekið fyrir að hafa brotið gegn stúlkunni í húsi afa þeirra og í bifreið á leið á fimleikaæfingar, hafi þrætt fyrir að hafa haft samræði við stúlkuna, látið hana handleika og sleikja getnaðarlim hans og/eða runka honum og hann aldrei farið með fingur inn í leggöng hennar. 

Fyrir dómi hafi maðurinn sagst ráma í að hafa gefið skýrslur hjá lögreglu, en ekki muna hvað hann sagði; hann væri með [ótilgreint] og sökum þeirra veikinda hefði hann engar minningar um neitt sem viðkemur sakarefni máls. 

„Við samanburð á framburði ákærða hjá lögreglu og fyrir dómi er ljóst að frásögn hans er óstöðug og hann margsaga um hluta sakarefnis.“

Framburður stúlkunnar stöðugur

Í dóminum segir að stúlkan hafi tvívegis gefið skýrslur vegna málsins, fyrst hjá lögreglu í lok nóvember 2022 og aftur fyrir dómi í nóvember síðastliðnum.

„Er skemmst frá því að segja að brotaþoli hefur borið meira og minna á sama veg um meint kynferðisbrot ákærða; sagt hann í fjölmörg skipti og um árabil, ýmist á heimili hennar að [...]eða á heimili hans að [...], haft við hana samræði um leggöng, látið hana handleika getnaðarlim hans, sjúga eða totta liminn og fróa ákærða, haft við hana munnmök, nuddað ytri kynfæri hennar, farið með fingur inn í leggöng hennar, þuklað á brjóstum hennar og kynfærum innan- og utanklæða og kysst hana tungukossum.“

Þá hafi hún greint frá því samhljóða og með stöðugum hætti að maðurinn hafi í eitt skipti á heimili hennar látið hana pissa upp í munn hans, að í eitt skipti hafi hann á heimili sínu hellt mjólk yfir brjóst hennar og sleikt burt og í þrjú eða fjögur skipti brotið gegn henni í bifreið þegar hann var að skutla henni á fimleikaæfingar.

Hjá lögreglu hafi hún borið að maðurinn hefði einnig, í eitt til þrjú skipti, brotið gegn henni í húsi afa þeirra efn fyrir dómi hafi hún sagst aðeins muna eftir einu slíku tilviki.

„Við samanburð á framburði brotaþola hjá lögreglu og fyrir dómi telur dómurinn að einstaklega gott samræmi sé í heildarfrásögn brotaþola og nánari lýsingu á einstökum tilvikum og hún án mótsagna. Er þettaekki síst athyglisvert fyrir þær sakir að meint brot voru framin á árunum [...]og bendir að mati dómsins eindregið til þess að brotaþoli sé að lýsa raunverulegum athöfnum og upplifun þeirra sem barn. Er það álit dómsins að framburður brotaþola, virtur einnog sér, sé í senn varfærinn, einlægur og afar trúverðugur.“

Með vísan til einkar trúverðugs framburðar stúlkunnar, vættis frænku hennar, sem hún hafði greint frá ofbeldinu, hafi dómurinn talið sannað svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa, gegn neitun mannsins, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem hann var ákærður fyrir með fyrstu þremur liðum ákærunnar.

Sakhæfur en undir framkvæmdarvaldinu komið  hvort honum verði refsað

Í dóminum segir að maðurinn hafi einnig verið sakfelldur fyrir hluta þeirra brota sem vörðuðu framleiðslu og vörslur barnaníðsefnis sem og vopnalagabrotið.

Í dóminum er ítrekað vísað til veikinda mannsins, sem hann hafi veikst af árið 2017 og í kjölfarið látið af brotum sínum gegn stúlkunni. Hvergi kemur þó fram hvers eðlis veikindi hans voru og eru.

Hins vegar segir að matsmaður hafi verið kvaddur og hann talið að maðurinn væri nú mjög veikur af kvíða, depurð og athyglisbrest. Megi þar lítið út af bregða og ljóst að ákærði sé í mikilli þörf fyrir áframhaldandi geðmeðferð. Hann hafi ekki greinst með staðfesta barnagirnd.

Aftur á móti væri með hliðsjón af geðrannsókn og greinargóðu dómsvætti hans fallist á þá niðurstöðu að maðurinn hafi verið sakhæfur í skilningi almennra hegningarlaga þegar hann braut gegn stúlkunni. Einnig væri fallist á þá niðurstöðu að ástand mannsins hafi ekki verið með þeim hætti að refsing geti ekki borið árangur.

Brot mannsins séu mjög alvarleg. Þau hafi falið í sér margítrekaðar nauðganir og önnur kynferðismök og beinst að ókynþroska barni sem hafi verið honum nákomið og honum hafði ýmist verið falið að passa eða verið annars í þeim návistum við hann að hún átti að vera örugg um friðhelgi persónu og líkama. Þetta traust hafi maðurinn rofið með svívirðilegri framkomu við náfrænku sína og brot hans hafi staðið yfir í nær tvö ár á afar viðkvæmu þroskaskeiði barnsins.

Hins vegar hafi brotin verið framin fyrir átján ára afmæli hans og að því gætu megi líta til refsilækkunarsjónarmiða almennra hegningarlaga vegna ungs aldurs. Maðurinn eigi sér ekki aðrar málsbætur.

Refsing mannsins þyki því vægast metin fangelsi í þrjú ár. Með hliðsjón af alvarleika brotanna og að gættum ákvæðum almennra hegningarlaga sé ekki efni til að skilorðsbinda þá refsingu þrátt fyrir hin alvarlegu, staðreyndu veikindi ákærða. Það sé síðan ákvörðun framkvæmdavaldsins hvort til afplánunar komi.

Loks var manninum gert að greiða stúlkunni fjórar milljónir króna í miskabætur og þrjá fjórðu alls málskostnaðar, sem var alls rúmar sjö milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×