Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri Domino’s, hefur starfað hjá fyrirtækinu í um þrjú ár. Hún er 26 ára gömul, uppalin í Reykjavík og lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands. Þaðan lá leiðin í viðskiptafræði í Háskóla Íslands. Anna er í sambúð með Sverri Fal Björnssyni, verkefnastjóra hjá WOW air, og situr hér fyrir svörum í Svipmynd Markaðarins.
Hvað hefur komið þér mest á óvart það sem af er ári?
Árið 2017 hefur verið ansi viðburðaríkt þó það sé ekki mikið búið af því. Ég kom sjálfri mér á óvart þegar ég keypti mér skipulagsbók sem ég hef í raun skrifað í og notað mjög mikið. Það kom mér líka á óvart að Ranieri var rekinn frá Leicester City.
Hvaða app notarðu mest?
Ég nota Instagram, Twitter og Snapchat mjög mikið þar sem ég set sjálf inn efni. Síðan hefur appið Clue reynst mér mjög vel ásamt Podcast og Spotify. Uppáhaldsappið er samt að sjálfsögðu Domino’s-appið.
Hvað gerir þú í frístundum þínum?
Ég er mjög virk í félagslífinu og ver miklum tíma með vinum og kærasta. Mér finnst mjög gaman að elda og fá fólk í mat ásamt því að ferðast.
Hvernig heldur þú þér í formi? Ég æfi fjórum sinnum í viku í hópaþjálfun hjá Birki Vagni í World Class, einu sinni í viku fæ ég síðan útrás í Beyoncé dansi í Kramhúsinu. Þess á milli hleyp ég og fer í þoltíma eins og til dæmis spinning.
Hvernig tónlist hlustar þú á?
Það fer allt eftir skapi. Allt frá hiphopi til power-ballaða.
Ertu í þínu draumastarfi?
Starfið mitt er mjög fjölbreytilegt frá degi til dags og einn hluti af starfinu felst í því að smakka pitsur. Ég held að það sé erfitt að toppa það!
