Viðskipti innlent

Óttast ekki komu Starbucks til Ís­lands

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te og kaffi.
Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te og kaffi. Vísir/Ívar

Framkvæmdastjóri Te og kaffi segist ekki óttast samkeppni frá alþjóðlega kaffirisanum Starbucks sem mun í næsta mánuði opna tvö kaffihús hér á landi í fyrsta sinn. Hann segist þvert á móti fagna samkeppninni.

Te og kaffi hefur um árabil verið ein stærsta kaffihúsakeðja á Íslandi. Í maí verður risabreyting á kaffimarkaði á Íslandi þegar Starbucks kemur í fyrsta sinn til landsins. 

Malasíska félagið Berjaya Food Berhad tilkynnti á dögunum að til standi að opna tvö kaffihús hér á landi undir merkjum bandaríska kaffirisans Starbucks, líklega þekktustu kaffihúsakeðju í heimi. Til stendur að opna eitt kaffihús á Laugavegi í miðborg Reykjavíkur og samkvæmt heimildum fréttastofu verður hið síðara á Hafnartorgi, einnig í miðborginni. 

Nægt pláss á markaðnum enda Íslendingar sólgnir í kaffi

Guðmundur Halldórsson framkvæmdastjóri Te og kaffi segist fagna samkeppninni. „Við erum bara held ég eins og aðrir landsmenn spennt að sjá hvernig Starbucks kemur til með að vera hér, þetta er náttúrulega fyrirtæki sem allir þekkja, alþjóðleg stór kaffikeðja og við erum bara áhugasöm að sjá hvernig þetta kemur allt til með að líta út.“

Íslendingar séu kaffióð þjóð. Guðmundur segist því telja nægt pláss á markaðnum þrátt fyrir innkomu Starbucks.

„Ég held það sé alveg pláss á innlendum markaði hjá þessari miklu kaffiþjóð sem við Íslendingar erum, ég held það sé pláss fyrir stóra alþjóðlega keðju eins og Starbucks og íslenskt fjölskyldufyrirtæki sem er búið að vera að sinna þessum markaði í yfir fjörutíu ár.“

Óttast ekki að missa viðskipti ferðamanna

Hann segist ekki óttast að missa viðskipti ferðamanna í miðborginni til Starbucks. „Ég held að margir sem komi til okkar séu fólk sem veit eitthvað um kaffi, kaffiáhugafólk og er sjálfsagt búin að afla sér upplýsinga um það áður en það kemur hvaða fyrirtæki það eru sem eru að gera bestu hlutina hér, þannig ég held að túristar komi áfram til með að heimsækja Te og kaffi þó þeir muni að sjálfsögðu heimsækja Starbucks líka.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×