Lars Lagerbäck hitti norsku landsliðsmennina í fyrsta sinn í gær þegar norska landsliðið kom saman í London til að undirbúa sig fyrir leik í undankeppni HM 2018.
Norðmenn mæta Norður-Írum í Belfast 26. mars næstkomandi og það verður fyrsti leikur liðsins undir stjórn Svíans.
Norskir blaðamenn eru að sjálfsögðu mættir til London til að fylgjast með öllu og þeir tóku það fram í skrifum sínum að Lars Lagerbäck hafi gengið á milli þeirra og tekið í höndina á hverjum og einum.
Lars Lagerbäck ákvað líka ekki að tala við landsliðsmennina áður en hann hélt sinn fyrsta fund með þeim í London. Hann varaði menn við fleiri fundum en vanalega. „Ég hef aldrei byrjað í mótsleik þannig að það verða fleiri fundir núna en ég hef vanalega,“ sagði Lars Lagerbäck við blaðamennina en Verdens Gang segir frá.
„Ég er nýliði. Venjulega fær maður fyrst nokkra vináttulandsleiki til að leggja línurnar. Núna þarf ég því að mála alla myndina fyrir leikmennina um hvernig ég vil hafa hlutina innan sem utan vallar,“ sagði Lagerbäck.
Lagerbäck er sem dæmi ekki búinn að ákveða það hver verður fyrirliði norska landsliðsins undir hans stjórn en líklegt þykir að Stefan Johansen taki við bandinu af Per Ciljan Skjelbred.
Lagerbäck tók sér líka tíma í að finna fyrirliða íslenska landsliðsins þegar hann tók við liðinu árið 2012. Á endanum ákvað hann að gera Aron Einar Gunnarsson að fyrirliða þrátt fyrir að Aron Einar hafi þá bara verið nýorðinn 23 ára gamall.
„Ég vil hitta leikmennina fyrst. Þeir fá kannski að vita hver verður fyrirliði á miðvikudag eða fimmtudag,“ sagði hinn 68 ára gamli Lars Lagerbäck.
Val Lars Lagerbäck á fyrirliða íslenska landsliðsins heppnaðist fullkomlega því Aron Einar Gunnarsson hefur staðið sig frábærlega í því hlutverki.
Lagerbäck vonast því örugglega eftir að finna annan Aron Einar í norska landsliðshópnum. Umræddur Stefan Johansen er 26 ára gamall miðjumaður sem spilar með Fulham í ensku b-deildinni. hann lék áður með Celtic í Skotlandi.
Lagerbäck ekki búinn að finna sinn Aron Einar í norska landsliðinu

Tengdar fréttir

Aron Einar truflaði viðtal Heimis með skylmingagrímu | Myndband
Landsliðsfyrirliðinn léttur daginn fyrir leikinn gegn Finnum í undankeppni HM 2018.

Aron Einar: Vissum að þeir væru fljótir að refsa
Landsliðsfyrirliðinn segir ekkert annað að gera en að læra af tapinu gegn Króatíu í Zagreb í kvöld.

Aron um hvað Lars sagði við hann í Albaníu: „Hann bað mig vinsamlegast að læra af þessu“
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í fótbolta, talaði af sér fyrir landsleik en spilaði svo sinn besta leik fyrir Ísland.

Kóngar norðursins með enn meiri yfirburði á nýjasta heimslistanum
Íslenska fótboltalandsliðið er ekki bara besta landsliðið á Norðurlöndum samkvæmt nýjum FIFA-lista heldur það langbesta.

Aron Einar kominn í bann: Svekktur út í sjálfan mig
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska fótboltalandsliðsins, var að vonum sáttur eftir dramatískan 3-2 sigur á Finnlandi í undankeppni HM 2018 í kvöld.

Aron Einar: „Hringdi oft hágrenjandi í mömmu en fékk alltaf sama svarið“
Landsliðsfyrirliðinn komst í gegnum erfiða tíma í Hollandi með hinu fræga íslenska viðhorfi.