Craig Pedersen mun ekki stýra íslenska karlalandsliðinu á Smáþjóðaleikunum í San Marínó og lykilmenn landsliðsins verða heldur ekki með á leikunum. Níu nýliðar eru í karlalandsliðinu en einn nýliði hjá konunum.
Búið er að velja þá tólf leikmenn sem munu skipa landslið Íslands, hjá konum og körlum, á Smáþjóðaleikunum, GSSE 2017, sem fara fram í San Marínó dagana 30. maí til 3. júní.
Ísland sendir til leiks landslið karla og kvenna í keppnina en þetta eru sautjándu leikar smáríkja Evrópu sem haldnir eru annað hvert ár. Síðustu leikar voru haldnir hér á landi fyrir tveimur árum þar sem bæði liðin okkar höfnuðu í 2. sæti.
Í báðum landsliðunum í þessu verkefni fá leikmenn sem leika í háskólum í Bandaríkjunum tækifæri til að taka þátt, sem er gleðiefni, en margir efnilegir leikmenn, sem hafa verið í yngri landsliðum og A-liðum undanfarin ár, iðka þar nám og leika körfuknattleik um þessar mundir.
Landslið kvenna er skipuð öllum þeim bestu leikmönnum sem leikfærir eru. Gunnhildur Gunnardóttir er barnshafandi og í fríi að þessu sinni. Ívar Ásgrímsson og aðstoðarþjálfarar hans Bjarni Magnússon og Hildur Sigurðardóttir, völdu 12 leikmenn í þetta verkefni, en fleiri leikmenn hafa verið við æfingar með þeim að undanförnu sem munu fá tækifæri í vináttulandsleikjum í Írlandi um miðjan júní í kjölfar Smáþjóðaleika.
Keflvíkingurinn Birna Valgerður Benónýsdóttir er eini nýliðinn í liðinu. Helena Sverrisdóttir er komin aftur inn í landsliðið eftir barnsburðarleyfi.
Ákvörðun var tekin af þjálfurum karlaliðsins að nýta þetta mót til að skoða yngri leikmenn og nota nokkra af þeim sem eru að fara á lokamót U20 landsliða í sumar spreyta sig í bland við aðra unga leikmenn.
Einungis þrír leikmenn karlaliðsins eiga A-leiki að baki sem eru í hóp að þessu sinni. Craig Pedersen, landsliðsþjálfari, valdi liðið með Finni Frey Stefánssyni og Arnari Guðjónsyni, aðstoðarþjálfurum sínum. Finnur Freyr mun stýra liðinu á leikunum en Finnur er einnig þjálfari U20 liðsins og Baldur Þór er hans aðstoðarþjálfari í báðum verkefnunum.
Kristófer Acox er reynslumesti leikmaður hópsins með 12 leiki en Ólafur Ólafsson hefur spilað 11 leiki og Tryggvi Snær Hlinason átta landsleiki.
Eftirtaldir leikmenn skipa landslið Íslands á Smáþjóðaleikunum í San Marino 2017:
Landslið kvenna
Berglind Gunnarsdóttir · Snæfell (8 landsleikir)
Birna Valgerður Benónýsdóttir · Keflavík
Emelía Ósk Gunnarsdóttir · Keflavík (2)
Hallveig Jónsdóttir · Valur (5)
Helena Sverrisdóttir · Haukar (61)
Hildur Björg Kjartansdóttir · UTPA, USA / Snæfell (12)
Ingunn Embla Kristínardóttir · Grindavík (9)
Ragna Margrét Brynjarsdóttir · Stjarnan (37)
Sandra Lind Þrastardóttir · Horsholms 79’ers, DK (11)
Sara Rún Hinriksdóttir · Canisius, USA / Keflavík (9)
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir · Skallagrímur (44)
Thelma Dís Ágústsdóttir · Keflavík (2)
(Landsleikir innan sviga), Birna Valgerður er nýliði.
Þjálfarar verða Ívar Ásgrímsson og Bjarni Magnússon.
Landslið karla
Emil Karel Einarsson · Þór Þorlákshöfn
Gunnar Ólafsson · St. Francis, USA / Keflavík
Jón Axel Guðmundsson · Davidson, USA / Grindavík
Kári Jónsson · Drexler, USA / Haukar
Kristinn Pálsson · Marist, USA / Njarðvík
Kristófer Acox · KR (12 landsleikir)
Maciek Baginski · Þór Þorlákshöfn
Matthías Orri Sigurðarson · ÍR
Ólafur Ólafsson · Grindavík (11)
Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll
Tryggvi Snær Hlinason · Þór Akureyri (8)
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson · KR
Þjálfarar verða Finnur Freyr Stefánsson og Baldur Þór Ragnarsson.
FIBA hefur útnefnt tvo dómara frá Íslandi til að dæma á Smáþjóðaleikunum en það eru okkar FIBA dómarar, þeir Leifur S. Garðarsson og Sigmundur Már Herbertsson, sem fara fyrir hönd Íslands og dæma á leikunum.
Að auki fer 5 manna fagteymi og fararstjórn frá KKÍ á mótið liðunum til halds og trausts.
Níu af tólf leikmönnum í karlalandsliðinu á Smáþjóðaleikunum í San Marínó eru nýliðar
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið

„Hann hefði getað fótbrotið mig“
Enski boltinn


VAR í Bestu deildina?
Íslenski boltinn


Howe lagður inn á spítala og missir af leiknum
Enski boltinn





Fleiri fréttir
