„Nú get ég aftur farið að hlakka til að fara í bíó, “ segir Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur um þær fregnir að Sigurjón Sighvatsson, framleiðandi, hafi flýtt framleiðsluferli á kvikmyndun Kulda, sem byggð er á samnefndri bók Yrsu.
Síðasta kvikmynd sem byggð var á verkum Yrsu var hrollvekjan Ég man þig og var henni vel tekið í íslenskum kvikmyndahúsum. Nýjasta myndin mun einnig byggja á yfirskilvitlegum grunni og fékk bókin góða dóma árið 2012 þegar hún kom út.
Erlingur Óttar Thoroddsen mun skrifa handritið og leikstýra kvikmyndinni. Þetta er ekki fyrsta mynd Erlings í fullri lengd en síðasta mynd hans var hrollvekjan Child Eater. Myndin fór sigurför um hrollvekjuheiminn og var meðal annars valin til að taka þátt í Horror Night á Stockholm International Film Festival. Erlingur hefur undanfarin ár verið búsettur í New York og lauk hann MFA námi í kvikmyndaleikstjórn við Columbia háskólann.
Erlingur mun leikstýra nýrri kvikmynd byggðri á verki Yrsu

Tengdar fréttir

Góður jarðvegur fyrir hrylling á Íslandi
Það er furðulegt að Íslendingar skuli ekki framleiða meira af hrollvekjum, að mati ungs leikstjóra sem frumsýnir um helgina íslensk/amerísku hryllingsmyndina Child Eater. Myndin er framleidd í Bandaríkjunum en innblásin af íslenskri sagnahefð

Afar myndrænar og lifandi persónur
Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér réttinn á nýrri spennusögu Yrsu Sigurðardóttur, Kulda, sem kom út fyrir helgi.

Svakaleg fyrsta stikla úr nýrri íslenskri hrollvekju
Þann 27. október næstkomandi verður ný íslensk kvikmynd frumsýnd en hún ber heitið Rökkur. Um er að ræða dramatíska hrollvekju um dáið ástarsamband en með aðalhlutverk fara Björn Stefánsson, Sigurður Þór Óskarsson, Aðalbjörg Árnadóttir og Guðmundur Ólafsson.