Áttunda umferðin hefst í dag: Fyrsti leikur Vals og KA í efstu deild í 14 ár Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. júní 2017 06:00 Sigurður Egill Lárusson er kominn með fjögur mörk í sumar. vísir/eyþór
Áttunda umferð Pepsi-deildar karla hefst í dag með tveimur leikjum. Tvö efstu lið deildarinnar verða bæði í eldlínunni. Topplið Vals fær KA í heimsókn á Hlíðarenda og í hinum leik dagsins sækir ÍBV Grindavík heim. Valur og KA hafa ekki mæst í efstu deild síðan 2003. Valur vann fyrri leikinn fyrir 14 árum, 1-2, þökk sé sigurmarki Sigurbjörns Hreiðarssonar, núverandi aðstoðarþjálfara Vals. Seinni leiknum lyktaði með 2-2 jafntefli þar sem tvö rauð spjöld fóru á loft. Bjarni Ólafur Eiríksson spilaði báða leikina gegn KA 2003 en hann er sá eini sem er eftir í Valsliðinu síðan þá. Valur situr sem áður sagði í efsta sæti Pepsi-deildarinnar með 16 stig. KA er í 4. sætinu með 12 stig.Andri Rúnar hefur skorað í fjórum deildarleikjum í röð.vísir/andri marinóSpútniklið Grindavíkur hefur fengið 10 stig af 12 mögulegum í síðustu fjórum leikjum sínum og hefur komið sér vel fyrir í 2. sætinu með 14 stig. Grindavík hefur innan sinna raða markahæsta leikmann deildarinnar, Andra Rúnar Bjarnason, sem hefur skorað sjö af 11 mörkum liðsins. Eyjamenn hafa verið heitir og kaldir til skiptis í sumar. Þeir voru heitir í síðustu umferð þar sem þeir unnu 3-1 sigur á KR. ÍBV endurheimtir Hafstein Briem úr leikbanni en hann hefur þegar fengið tvö rauð spjöld á tímabilinu. Báðir leikir dagsins hefjast klukkan 17:00 og verður leikur Vals og KA sýndur beint á Stöð 2 Sport HD.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Handbolti „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Fleiri fréttir Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Sjá meira