Lögreglan á Grænlandi telur að þrír fullorðnir og eitt barn hafi farist í flóðbylgjunni sem gekk á land í þorpinu Nuugaatsiaq á vesturströnd Grænlands á sunnudag. Í fyrstu var talið að jarðskjálfti af stærðinni fjórir hefði valdið flóðbylgjunni en nú virðist liggja fyrir að gríðarlegt berghlaup hafi fallið í fjörð austan við þorpið með þessum afleiðingum.
Þorsteinn segir að berghlaupið hafi fallið úr snarbrattri hlíð í Karrat Isfjorden, um þrjátíu kílómetra innan og austan við Nuugaatsiaq. Innar í firðinum er Rink-skriðjökullinn en hann skríður hvað hraðast fram af öllum jöklum Grænlands.
Svipuð atburðarás og í Öskjuvatni fyrir þremur árum
Erfitt er að segja hversu stórt berghlaupið var að svo stöddu. Þorsteinn segir að áætlað sé að brotsárið sé um 1.100 metrar að breidd og 300 metrar á hæð. Ljóst sé að milljónir, jafnvel tugir milljóna, rúmmetra af efni hafi steypst ofan í fjörðinn.
Þorsteinn segir að um svipaða atburðarás og í skriðunni í Öskjuvatni árið 2014 hafi verið að ræða. Berghlaup sem féll út í vatnið olli þá flóðbylgju sem gekk allt að 120 metra upp fyrir yfirborð vatnsins og náði inn í Víti, eins og Vísir greindi frá.
Í myndasyrpu neðst í fréttinni má sjá eyðilegginguna sem flóðbylgjan olli í Nuugaatsiaq. Yfirvöld telja að ellefu húsum hafi skolað á haf út.

Þekkt er að þegar jöklar eins og Rink-skriðjökullinn hopa skilja þeir eftir sig hlíðar sem geta veikst og runnið af stað, meðal annars vegna rigninga, leysinga, jarðskjálfta eða einfaldlega eigin óstöðugleika.
„Þetta er náttúrulega bara afsprengi þess að þú ert með berggrunn sem hefur verið sorfinn af jökli og svo færðu þessar bröttu og óstöðugu hlíðar. Berghlaup eru algeng á þessu svæði. Það er náttúrulega afleiðing loftslagshlýnunar,“ segir Þorsteinn um flóðbylgjuna á Grænlandi.

„Þegar jöklar hörfa úr fjörðum eða dölum þá standa eftir þessar bröttu hlíðar. Ef það er veikleiki í berggrunninum þá eru miklar líkur á að þær gefi undan,“ segir hann.
Ekki spurning um hvort heldur hvenær það gerist á Íslandi
Ísland fer ekki varhluta af hopi jökla. Þó að jöklar gangi hér ekki fram í sjó segir Þorsteinn að huga þurfi af hættunni sem skapist þegar þeir hörfa.
Jöklarnir hafa hopað og þynnst hratt þannig að veikar hlíðar standa eftir líkt og hefur gerst á Grænlandi. Samfara því hafa vatnsmikil lón myndast við sporða margra þeirra sem berghlaup geta fallið í og valdið flóðbylgjum.
Eitt slíkt flóð átti sér stað í Steinsholtsdal þegar berghlaup féll að hluta til ofan í lón fyrir framan Steinsholtsjökul árið 1967. Merki þess má sjá í sethólum og stórgrýti í dalnum. Önnur stór skriða féll á Morsárjökul fyrir tíu árum.

Hann mun vinna við rannsóknir á hlíðum við Sólheimajökul og aðra skriðjökla í sunnanverðum Vatnajökli í sumar. Einnig sótti hann um styrk til að geta hafið kortlagningu á hættulegum hlíðum næsta sumar.
„Þetta er að gerast og við erum með allan þennan fjölda ferðamanna í þessum umhverfi. Þetta er bara eins og að vakta eldfjöll eða jarðskjálfta. Við þurfum að skoða líka þessi umhverfi varðandi hættu,” segir Þorsteinn.