Enn skorar Matthías en Rosenborg tapaði stigum 3. júlí 2017 18:53 Matthías er óstöðvandi þessa dagana. vísir/getty
Matthías Vilhjálmsson heldur áfram að skora fyrir topplið Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni en liðið mátti þakka fyrir að hafa fengið stig gegn Kristiansund á útivelli. Matthías kom Rosenborg yfir á 30. mínútu leiksins en það var fimmta mark hans í deildinni í sumar. Matthías hefur einnig skorað sjö mörk í aðeins tveimur bikarleikjum í sumar en hann lagði svo upp annað mark Rosenborg í leiknum. Hann hefur nú skorað þrjú mörk í síðustu fjórum deildarleikjum Rosenborg og er næstmarkahæsti leikmaður liðsins í deildinni. Rosenborg var með 2-0 forystu að loknum fyrri hálfleik en Kristiansund skoraði þrjú mörk í síðari hálfleik - Jean Alassane Mendy fyrstu tvö og Sondre Sörli það þriðja. Það stefndi í óvæntan sigur Kristiansund en hinn danski Nicklas Bendtner reyndist bjargvættur Rosenborg er hann tryggði sínum mönnum stig með marki í uppbótartíma. Rosenborg er á toppi deildarinnar með 29 stig, tveimur meira en Brann. Kristiansund er í þrettánda sætinu með sautján stig. Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Arnór Smárason, Birkir Már Sævarsson og Ögmundur Kristinsson voru í byrjunarliði Hammarby sem tapaði fyrir Häcken, 2-0. Arnór var tekinn af velli á 75. mínútu. Hammarby er í níunda sæti deildarinnar með átján stig en í hinum leik kvöldsins vann Djurgården öruggan 4-1 sigur á Kalmar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Körfubolti Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Enski boltinn Fleiri fréttir Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Sjá meira