Ísland er úr leik á Evrópumótinu í knattspyrnu sem fer fram í Hollandi, eftir að í ljós kom að Frakkland og Austurríki gerðu 1-1 jafntefli í hinum leik dagsins í C-riðlinum.
Ísland hefur tapað báðum leikjunum sínum á mótinu, sem varð til þess að Ísland þurfti að treysta á að Frakkland myndi leggja Austurríki af velli til þess að eiga von á að komast áfram.
Eftir leiki dagsins er Austurríki með 4 stig ásamt Frökkum og bæði liðin eru með sömu markatölu. Í þriðja sætinu er Sviss með 3 stig sem þær sóttu eftir að hafa sigrað Ísland 2-1 fyrr í dag. Ísland er svo á botni riðilsins með 0 stig sem er gríðarlega svekkjandi niðurstaða fyrir Ísland.
Austuríki komst yfir á 27. mínútu með marki frá Lisu Makas en Frakkar jöfnuðu með marki frá Amadine Henry á 51. mínútu.
Næsti leikur Íslands er á móti Austurríki á miðvikudaginn og það er ekkert annað í boði en að klára mótið með stæl og sækja þrjú stig í Rotterdam.
Ísland úr leik á EM eftir jafntefli Frakklands og Austurríkis

Mest lesið

„Hann hefði getað fótbrotið mig“
Enski boltinn


VAR í Bestu deildina?
Íslenski boltinn

Howe lagður inn á spítala og missir af leiknum
Enski boltinn





