Bæjarar byrjuðu tímabilið vel í úrhellinu í München Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. ágúst 2017 20:41 Joshua Kimmich tekur innkast fyrir Bayern í miðju úrhellinu. Vísir/Getty
Bayern München vann 3-1 sigur á Bayer Leverkusen í fyrsta leik nýs tímabils í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta en liðin mættust á Allianz Arena í kvöld. Mikil rigning setti svip sinn á leikinn og þurfti meðal annars að seinka seinni hálfleiknum um tuttugu mínútur hennar vegna. Seinni hálfleikinn byrjaði síðan á því að dómarinn dæmdi víti eftir að hafa fengið skilaboð frá vídeódómara sem var staddur í Köln. Eftir að vídeódómarinn skoðaði atvikið þá fékk dómari leiksins þær upplýsingar að boltinn hafi farið í hendi varnarmanns Leverkusen innan teigs. Dómarinn dæmdi því víti og gaf Leverkusen-manninum gult spjald. Þetta er í fyrsta sinn sem dæmt er eftir myndbandsupptöku i Bundesligunni. Robert Lewandowski skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnunni en markið kom á 53. mínútu og Bæjarar þar með komnir í 3-0. Þetta var 61. mark Lewandowski í síðustu 66 deildarleikjum hans með Bayern. Fyrri tvö mörkin komu á fyrstu tuttugu mínútum leiksins. Það fyrra skoraði miðvörðurinn Niklas Süle á 9. mínútu með skalla eftir aukaspyrnu Sebastian Rudy og það síðara skoraði Corentin Tolisso á 19. mínútu með skalla eftir sendingu frá Arturo Vidal. Leverkusen liðið gafst ekki upp þrátt fyrir slæma stöðu og Svisslendingurinn Admir Mehmedi minnkaði muninn á 65. mínútu. Leverkusen lék mun betur í seinni hálfleik en þeim fyrr og var nokkrum sinnum nálægt því að minnka muninn enn frekar.
Þýski boltinn Mest lesið Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Fleiri fréttir Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Sjá meira