Tískufólk Oslóar virðist vera mjög litaglatt og með helstu trendin á hreinu. Rautt, leður og glans og rykfrakkinn er áberandi á þessum myndum, en við fjöllum um þau betur í nýjasta September-blaði Glamour.
Gucci er áberandi enn og aftur, bæði í töskum og beltum. Besti fylgihluturinn að okkar mati samt? Vinkonan! Hún er mikilvæg.







