Alger pattstaða í kortunum
Vísir ræddi við Guðmund Hálfdánarson sagnfræðiprófessor og helsta niðurstaða hans er sú að hér sé alger pattstaða í kortunum. Á Facebook rýnir nú hver sem betur getur í nýja skoðanakönnun sem 365 birti í morgun. Og mörgum fallast hendur. Kosningakannanir Fréttablaðsins hafa í gegnum tíðina reynst þær haldbestu og það sem sýnir sig þar hefur verið býsna nálægt því sem kemur upp úr kössunum.
Verðum að sætta okkur við styrk spillingarafla
Ein þeirra sem býður uppá góða yfirferð og rýni á samskiptamiðlunum er Salvör Kristjana lektor við HÍ. Hún bendir á að þar sé sennileg einhver skekkja til að mynda í ljósi þess hvaða flokkar eru duglegastir við að toga fólk á kjörstað sem ætla má að séu Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Samfylking, sem búa að smurðustu kosningavélunum.Og spenna er um hvort fólk sem ætlaði sér að kjósa Flokk fólksins kjósi annað ef það heldur að atkvæði sín falli dauð - eða sá flokkur eflist á lokasprettinum því það er mikið í húfi að ná inn fyrir 5 prósenta markið.
„En það er eitt sem fólk verður að sætta sig við, fólk sem sér tvíeykið Bjarni Ben og Sigmundur Davíð sem táknmynd spillingar - það er að kjósendur vilja alls ekki spillinguna burt,“ segir Salvör. Kosningaspár segja að flokkar sem þeir leiða séu að fá samanlag 35,5 prósent. „Og það er nú ansi mikið.“
Kemst þótt hægt fari
Svo virðist sem íslenskir kjósendur séu einkar staðir. Einar Gautur Steingrímsson lögmaður bendir á að Fjórflokkurinn svokallaði lifi góðu lífi, með tilbrigðum og njóti 81 prósenta fylgis. „Framboð Sjálfstæðismanna er í tvennu lagi (D og C) sem gerir 32%, Alþýðuflokkurinn (S) er með 14%, Alþýðubandalagið (Vinstri grænir) er með 19%, Framsóknarflokkurinn (B og M) er með 16% og síðan eru Píratar með 9%. Aðrir komast ekki inná þing.“ Enn hærra hlutfall nær svo inná þing vegna kosningakerfisins.Enn einn sem veltir fyrir sér þróuninni er svo Gunnar Smári Egilsson fjölmiðlamaður sem skoðar fylgi Sjálfstæðisflokksins og svo samanlagt fylgi Vg og Samfylkingar og birtir súlurit sem sýnir það, allt frá 1930.
Það má sem sagt greina þróun, en hún verður að teljast hæg í huga þeirra sem vilja breytingar og eru orðinir óþreyjufullir að sjá eitthvað slíkt.
Popúlismi á undir högg að sækja
En, svo áfram sé vitnað í Salvöru þá segir hún merkilegt að skoða hverjir séu að toppa á réttum tíma og hvað þeir flokkar eigi sameiginlegt. Sem eru Samfylking og Viðreisn. Evrópusinnaðir flokkar en þó sé Evrópuaðild ekki kosningamál nú. Samanlagt fylgi þeirra eru 22 prósent. „Þessi fylgisaukning ESB flokkanna er ef til vill vísbending um að horft sé frekar út á við núna á seinustu metrum kosningabaráttunnar og þjóðernissinnaðir flokkar eða flokkar sem horfa inn á við (t.d. Flokkur fólksins) hrapi í vinsældum. Það verður heldur ekki vart við neinn uppgang þjóðernissinnaðra flokka núna.“
„Samfylkingin var næstum alveg dauð hefur fyrst núna hjarnað við og Björt framtíð mun að öllum líkindum sofna svefninum langa í kosningunum. Framsóknarflokkurinn splundraðist og er bara eins og lítil flís af sjálfum sér eftir að hafa leitt Bjarna-Sigmundar eða Panama stjórnina sálugu.“
Vinstri eða hægri stjórn
Enn er því staðan sú að Framsóknarflokkurinn er lykilstöðu, þrátt fyrir lítið fylgi, valdaflokkurinn sá opinn í báða enda.Ef Sjálfstæðisflokkurinn og Bjarni Benediktsson fær stjórnarmyndunarumboðið eru einu mögulegu samstarfsaðilarnir Viðreisn, Miðflokkur og Framsóknarflokkur, stjórn sem er með 33 þingmenn. Bjarni Benediktsson er illa brenndur af því að leiða svo veika stjórn og hann hefur oft sagt að honum hugnist lítt margra flokka ríkisstjórnir. Hvað þá veikar slíkar.

Skurðarpunkturinn er slagurinn milli Miðflokks og Pírata
Þetta er pattstaða, með öðrum orðum. Ef aðrir möguleikar eru útilokaðir svo sem minnihlutastjórn, þriggja flokka stjórn Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna eða að Viðreisn tæki þátt í fjögurra flokka vinstristjórnarsamstarfi, þá veltur þetta á því atriði hvernig slagurinn á milli Sigmundar Davíðs og Helga Hrafns fer. Að því gefnu að þeir séu ekki að taka frá þeim flokkum sem eru inni í myndinni sitthvoru megin átakalínanna.Ef Píratar bæta við sig einum til tveimur og Miðflokkurinn tapar miðað við kosningarnar, og visa versa, er það sveifla uppá kannski fjóra þingmenn. Sem gerbreytir stöðunni hvað varðar þingstyrk væntanlegrar stjórnar.

Mikil spenna í kortunum
Baldur Þórhallsson prófessor, einn helsti sérfræðingur Vísis, segir að þetta gæti orðið kapphlaup milli Viðreisnar, Pírata og Framsóknar að komast í stjórn með VG og Samfylkingu.„Vg er enn í bestri stöðu til að mynda ríkisstjórn. Samfylking kemur sterk inn. Hinir flokkarnir þrír munu hefja kapphlaupið um leið og fyrstu tölur verða birtar. Framsókn gæti þó orðið það löskuð eftir kosningar að hún fari hægt af stað en endaspretturinn verður þeim mun betri. Kapphlaup minni flokkanna mun styrkja samningsstöðu VG og Samfylkingar. Þannig gæti, sterk velferðarstjórn, draumur VG orðið að veruleika - ef tekið er mið af skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag,“ segir Baldur og er kátur. Honum leiðist ekki spennan sem komin er upp í pólitíkinni í dag.