Skoðun

Skattagrýla gamla á stjái

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Í Fbl. 18. október er greint frá því í opnugrein að ekki verði hægt að ná í fé til að taka skref til úrbóta á samfélaginu án þess að skattheimta gangi yfir alla. Með öðrum orðum: Það verður að skattleggja alla tekjuhópa. Allt frá þeim fyrsta með 316.000 meðalárstekjur upp í þann tíunda með 18 milljóna meðalárstekjur einstaklings og 338 milljarða heildartekjur til handa ríflega 20.000 manns. Fleira kemur þarna fram sem er í raun fjarri stefnumörkun flokka; þar á meðal VG.

Hverjir tafsa sífellt um skattaálögur á alla gjaldendur, jafnt launamenn sem aðra, og lítt burðug fyrirtæki sem stór og hagnaðarsæl? Það gerir einn flokkur í ákveðnum tilgangi. Sjálfstæðismenn vekja upp gömlu Skattagrýlu til þess að hræða fólk frá að kjósa félagshyggjuflokka, einkum VG.

Bent skal á að þeir hafa t.d. sjálfir hækkað matarskatt, hugðust hækka virðisaukaskatt í ferðaþjónustu og setja á vegtolla. Og af hverju? Af því að allir vita að slíkar tekjur eru nýttar í eitthvað jákvætt í augum skattheimtumannsins. Til að mynda vilja sjálfstæðismenn vegtolla til að flýta framkvæmdum í samvinnu ríkis og einkaaðila. Benda má á að gjald- og skattahækkanir frá 2013 og áfram lentu aðallega á 90% gjaldenda en hlífðu efnuðustu 10% þeirra.

VG leggur áherslu á að leita margra leiða til að afla lágmarksupphæðar í brýnustu lagfæringar á helstu sviðum en hlífa um leið nær öllum tekjuhópum við skattaálögum. Við skulum íhuga hvort efnuðustu 10% landsmanna (sem eiga 2/3 hluta allra eigna), hópurinn í 10. tekjuflokki og 1-2% fjármagnstekjueigenda (sem eiga upp undir 50% fjármagnstekna) teljist aflögufær. Til viðbótar mætti horfa til hærri arðgreiðslna úr bönkum sem ríkið ræður yfir, til hluta af 43 milljarða afgangi í fjárlagafrumvarpinu og til auðlindagjalda stórra fyrirtækja með þéttan hagnað.

Skattagrýla greyið er úrelt en þó reynt að telja fólki trú um að hún búi í samneyslunni.

 

Höfundur er  í 1. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×