Álitsgjafar okkar voru margir hverjir sammála um að vera ansi vanafastir þegar kæmi að kaffibollanum og tækju litlar áhættur þegar þorstinn í gott kaffi kviknaði.
Besta kaffið á höfuðborgarsvæðinu er að finna á kaffihúsum keðjunnar Te & kaffi að sögn álitsgjafa Vísis. Fast á hæla þess fylgir önnur kaffihúsakeðja, nefnilega Kaffitár, en fólk virðist skiptast í tvær fylkingar þegar kemur að þessum tveimur kaffihúsakeðjum. Miðbæjarkaffihúsið Reykjavík Roasters vermir síðan þriðja sætið. Vindum okkur í niðurstöðurnar og hvað álitsgjafar okkar höfðu að segja um ilmandi, eldheita koffíndrykkinn.

„Af því að það koma bráðum jól þá held ég mikið upp á jóladrykkina frá Te & kaffi. Kaffi með annað hvort lakkrís- eða piparkökubragði er erfitt að standast í skammdeginu. Te & kaffi í Kringlunni er afar notalegur staður, svolítil vin í eyðimörkinni í upplýstri verslunarmiðstöðinni.“
„Kaffihúsið Te & kaffi í Hamraborg er mjög gott, þar er líka gott kaffi og góð te, og sérlega góðar múffur sem eru bakaðar í gamla góða „Muffin bakery“ sem var einu sinni í Hamraborg, en bakar nú fyrir Te & kaffi.“
„Te & kaffi selur gott kaffi og heldur standard. Þar er ég með áskriftarkort en verðið er í hærra lagi eins og víða.“
„Basic - maður veit hvað maður fær.“
„Te & kaffi er með æðislegt kaffi og notalegt umhverfi.“
„Te & kaffi Smáralind er langbesta te-og kaffiverslun borgarinnar. Stelpurnar þar eru algjörlega með puttann á púlsinum. Árstíðardrykkir þeirra eru „to die for“. Algjört sælgæti.“
„Te & kaffi í Borgartúni verður oftast fyrir valinu hjá mér þegar mig langar í gott kaffi, því þar er oftast hægt að treysta á það að vera þjónustaður af þokkalega skóluðum kaffibarþjón. Það hljómar ótrúlega, en það er hægt að sækja sér bæði kósí og lókal stemningu í Borgartúninu þó staðurinn sé í stærra lagi og stundum troðfullur af fólki.“
„Mjög gott kaffi og kruðeri. Notaleg stemmning og mjög falleg hönnun á kaffihúsunum.“

„Kaffitár í Bankastræti er alltaf klassíkt og klikkar aldrei. Skemmtileg blanda af útlendingum og Íslendingum þar inni. Manni líður smá eins og maður sé í útlöndum á því kaffihúsi.“
„Kruðerí við Nýbýlaveg, í eigu Kaffitárs, er sérlega kósí og vinalegt kaffihús, kaffi yfirleitt gott og gott úrval af sætabrauði.“
„Ég drekk bara kaffi á einum stað og hef alltaf gert og það er Kaffitár. Ég fæ mér ekki kaffi á öðrum stöðum. Málið er einfaldlega þetta: Kaffitár er eini kaffistaðurinn á Íslandi sem kann að gera almennilegan latte. Ég hef gefið öðrum séns en það hafa alltaf verið vonbrigði. Ég hef farið á Kaffitár alla mína tíð og get ekki drukkið kaffi nema frá þeim. Ég hlakka til á kvöldin því ég veit að þegar ég vakna fer ég og fæ mér latte á tárinu.“
„Ef ég ætti að velja keðjurnar þá kemst Te & kaffi ekki nálægt Kaffitári. Kaffitár er með langbesta kaffið og staffið virðist leggja mikið meira í þjónustuna að mínu mati.“
„Klikkar ekki latte-inn þar. Góð þjónusta og alltaf tekið vel á móti manni.“
„Kaffitár, Bóksölu stúdenta. Þrælgóður og sterkur Americano, en veltur dálítið á því hver er á vakt.“

„Geggjað kaffi og góð stemmning. Verst hvað það er oft erfitt að fá sæti.“
„Kaffið hefur einhvern veginn silkimjúka flauelsáferð.“
„Svartur Americano á Reykjavík Roasters. Bara hrikalega gott og vandað kaffi.“
„Tvihleypan er algjör snilld. Cappuccino og Espresso til hliðar. Langbesta kaffið i bænum. Mesta ástriða sem ég hef séð hjá kaffiþjónum.“
„Kaffið sæmilegt en stemningin 100%. Leiðinlegt að gæðum kaffisins hefur hrakað.“

„Ég veit fátt betra í skammdeginu en að koma við á Café Haiti og fá mér einn vel sterkan og svartan Americano. Eigendurnir afgreiða kaffið af ástríðu og það finnst ekki betri kaffibolli á höfuðborgarsvæðinu.“
„Alltaf uppáhaldskaffið þó að kaffihúsið sem slíkt sé ekki sérlega sexý.“
„Alltaf pottþétt, alltaf gott. Pínu falið, sem er fínt.“
„Á Café Haiti er gott að vera.“
5. sæti - Grái kötturinn
„Ég drekk bara kaffi við hátíðleg tækifæri og síðasti bolli sem ég fékk mér var á Gráa Kettinum á Hverfisgötu. Þetta reyndist hrikalega góður latte eftir risamáltíðina sem ég hafði pantað mér og stuttur spjallfundur sem átti bara að taka svona hálftíma teygðist í tvo og hálfan því það var bara svo gott að sitja þarna inni og njóta. Ekki spillir svo að eigendurnir Ási og Elín eru með þeim hressari.“
„Espresso-inn mjög góður. Rólegur og sjarmerandi staður í hjarta bæjarins.“
„Hér er klassík sem þarf ekki að breyta. Svo eru eigendurnir alveg eiturhressir alltaf hreint!“

Mokka
„Gott kaffi og enn betra umhverfi.“
„Mjög hár standard hjá þeim og kaffið er ávallt eins.“
Kaffi Vest
„Hverfiskaffihúsin eru það sem koma skal og þeim fer vonandi fjölgandi í öllum hverfum. Kaffi Vest býður upp á gott kaffi og einnig mjög meðlæti, til að mynda Söru Bernharðs-kökur sem afar erfitt er að standast.“
„KaffiVest er með mjög gott kaffi en maður þarf að kaupa bollann á afborgunum því hann er svo rugl dýr.“
Kaffi Laugalækur
„Frábært hverfiskaffihús með góðu kaffi.“
„Æðislegt andrúmsloft, vinalegt starfsfólk og fjári góð uppáhelling.“
Súfistinn í Hafnarfirði
„Þar er bæði gott kaffi og það sem skiptir miklu máli, góðar tertur.“
„Besti frappóinn, hröð afgreiðsla og opið lengi, sem er kostur fyrir fólk sem þarf sinn frappochino á skrítnum tímum sólarhringsins.“
Pallett
„Enda eigandinn margfaldur kaffigerðarmeistari.“
„Virkilega gott kaffi og frábært andrúmsloft. Eigandinn er alltaf súperhress og þarna er stórgott að funda.“
Þessir staðir komust einnig á blað:
Borðið, Garðskálinn, Kaffifélagið, Kaffi Roma, Iðu kaffi, Dunkin’ Donuts, Apótekið, Gló, Yoga Food, Matarkjallarinn, Íslenski barinn og Norðurbakki.
Álitsgjafar:
Birta Björnsdóttir, fréttakona
Hannes Óli Ágústsson, leikari
Alexía Björg Jóhannesdóttir, leikkona og kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík.
Guðrún Gunnarsdóttir, útvarpskona og söngkona
Lára Björg Björnsdóttir, ráðgjafi
Sigtryggur Ari Jóhannsson, ljósmyndari
Einar Ben, framkvæmdastjóri Tjarnargötunar
Arnar Eggert Thoroddsen, aðjúnkt við Háskóla Íslands.
Laufey K, myndlistarkona
Laufey Elíasdóttir, leikkona og ljósmyndari
Guðrún Vaka Helgadóttir, ritstjóri WOW magazine
Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill
Guðmundur Ingi Þorvaldsson, leikari
Elvar Logi Rafnsson, Kompaníkóngur
Anna Kristín Magnúsdóttir, eigandi Kjólar og Konfekt
Baldur Beck, körfuboltasérfræðingur og smekkmaður á kaffi
Þórunn Högna, stílisti
Bergrún Íris Sævarsdóttir, teiknari og rithöfundur