Það liggur enn ekki fyrir hvenær Conor McGregor berst næst hjá UFC en forseti sambandsins segir að það verði ekki á næstunni.
Conor hefur verið að njóta lífsins síðan hann varð milljarðamæringur eftir að hafa barist við Floyd Mayweather í boxbardaga í ágúst.
„Við skulum byrja á því að komast í gegnum hátíðirnar. Conor fer vonandi að kitla í fingurna að koma aftur eftir áramót og vonandi komum við honum í búrið næsta sumar,“ sagði Dana White, forseti UFC.
Conor barðist síðast hjá UFC í nóvember á síðasta ári og það verða líklega erfiðar samningaviðræðurnar við hann þar sem hann er kominn í launaflokk sem er langt fyrir ofan alla aðra bardagakappa hjá UFC.
„Peningar skipta auðvitað alltaf máli en við höfum alltaf náð samkomulagi við Conor. Ég hef engar áhyggjur af peningahliðinni,“ bætti White við.
Dana býst ekki við Conor í búrinu fyrr en næsta sumar
Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Mest lesið


Fékk dauðan grís í verðlaun
Fótbolti


„Sýna þeim að þau gerðu mistök að segja samningnum upp“
Íslenski boltinn




„Við erum búnir að brenna skipin“
Íslenski boltinn

„Taka hringi á jörðinni og öskra eins og þú sért að fæða barn“
Íslenski boltinn
