Að venju var mikið rætt um leikinn og strákana okkar á Twitter og hér fyrir neðan má sjá brot af því besta. Rússneska dómaraparið kemur þar mikið við sögu en einnig má greina örlitla þreytu hjá landanum á því að mæta Króötum í enn eitt skiptið í hinum ýmsu íþróttum.
Ótrúlega slakur eftir daginn. Líka fyrir leikinn í kvöld gegn Króatíu. Veit að þetta verður erfitt. En hvað með það. Þanning á það að vera. Bítlar í eyra sem stendur. Allir í stuði.Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) January 14, 2018
Ég stakk melspíru í eyrun á mér yfir þjóðsöng króata, þvílík hljóðmengun #emruv
— Tóti (@totismari) January 14, 2018
Gaman að mæta systraþjóð okkar, Króatíu. Leikur númer 849 síðastliðna 12 mánuði í hinum ýmsu íþróttum.
— Kjartan Atli (@kjartansson4) January 14, 2018
Handboltalógik 101: ef þú ert ekki hávaxinn en samt góður, þá ertu klókur leikmaður #emruv
— Daníel Freyr Jónsson (@danielfj91) January 14, 2018
À minni ævi hef ég farið à marga leiki, en sà allra hàvaðasti var ì Zagreb hérna um àrið...ég vopnaður lìtilli Bongó trommu gegn 30.000 kolklikkuðum Króötum sem var gagnlaust þvì Króatar eru þeir allra hàvuðustu Stuðningsmenn sem ég hef kynnst #EmRùv #Handbolti #KróÌsl
— Árni Þór Gunnarsson (@ArniThor8) January 14, 2018
Þessi Pálmason #4 er nokkuð góður í þessum leik #emruv
— Þórður Helgi Þórðar (@Doddilitli) January 14, 2018
Geir hefur lagt of mikla áherslu á fyrstu 20 mín fyrir þetta mót #handbolti #EmRùv
— Sindri Ólafsson (@OlafssonSindri) January 14, 2018
Of margir tapaðir boltar en samt er margt sem ég er mjög ánægður með hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik. Meira svoleiðis! #emruv
— Halldór Marteins (@halldorm) January 14, 2018
Kannski að Króatar rói sig aðeins á pöllunum svo við náum eins og einu Óle Óle #emruv #sústemning
— Daníel Geir Moritz (@DanelGeirMoritz) January 14, 2018
Afhverju eru Snorri og Logi ekki með fálkaorðuna á sér eins og gamlir hermenn í viðtali? #ruviþrottir #ruv #emruv #em18
— MagnusYngviEinarsson (@mallieinarss) January 14, 2018
Línusendingin frá Aroni á Bjarka El þegar það var dæmd lína er einhver rosalegasta línusending sem ég hef séð. Þvílíka sendingin.
— Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson (@thorkellg) January 14, 2018
Voru engir Króatískir dómarar á lausu? Bara hafa heimadómgæsluna alveg uppi á borðinu. #emruv
— Torfi Geir Símonar (@torfigeir) January 14, 2018
Blóðugt að hitta ekki í opið markið og grípa ekki aleinn á línunni. Flott frammistaða en svona atriði skilja á milli í leikjum gegn þeim bestu. Áfram Ísland.
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) January 14, 2018
Er Styrmir Gunnarsson að þjálfa Króatana? #emruv
— Svany Skuladottir (@Svanys01) January 14, 2018
Ég er ekki vanur að kvarta undan dómgæslu.. en þessir rússar eru ekki í lagi. #emruv #handbolti
— Ásmundur Atlason (@AsmundurAtlason) January 14, 2018
Ómar á miðjuna og prófa Ými í vörninni.
— Ingvi Þór Sæmundsson (@ingvithors) January 14, 2018
Bíddu, Rússar sem eru óheiðarlegir í íþróttum? Aldrei heyrt annað eins rugl. #emruv
— Anna Jakobína (@AnnaJakobina) January 14, 2018
Er handboltaáhugafólk almennt ánægt með þessa reglu um að það þurfi ekki að vera markmaður? #handbolti #emptygoal
— Ómar Smárason (@omarsmarason) January 14, 2018
Eðlilega eru einhverjir Króatar að slást í stúkunni. #gleðin
— Henry Birgir (@henrybirgir) January 14, 2018
Það er svo sárt að sjá svona afburða slæma dómgæslu og hvernig hún getur snúið leiknum. #emruv
— Torfi Geir Símonar (@torfigeir) January 14, 2018
Ef það má velja hvorum stórmótsleiknum við Króata á að tapa í ár vel ég þennan frekar #emruv
— Einar Matthías (@einarmatt) January 14, 2018
Djöfulsins lokun á sjoppunni. Engar sígó að fá í Split #emruv
— Árni Jóhannsson (@arnijo) January 14, 2018
Er ekki örugglega langt í næsta leik? Aron þarf að laga slánna eftir sig. #emrúv
— Randver Pàlmi (@RandverPalmi) January 14, 2018
Of stórt svið fyrir Ágúst Elí ? Hefðu frekar tekið reynsluna fram yfir talentið og tekið því @aronrafn1 með. #handbolti #emruv
— Palli Eiríks (@EiriksPalli) January 14, 2018