Fimm létust í umsátrinu í Kabúl Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. janúar 2018 07:40 Fylgst með Intercontinental-hótelinu í Kabúl úr fjarska. Umsátrið hófst klukkan 21 að staðartíma í gærkvöldi. Vísir/afp
Umsátrinu á Intercontinental-hótelinu í Kabúl, höfuðborg Afganistan, sem hófst í gær er nú lokið. Að minnsta kosti fimm óbreyttir borgarar létust og sex særðust í umsátrinu, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá yfirvöldum. BBC greinir frá. Allir árásarmennirnir, sem í fyrstu voru taldir fjórir en síðar kom í ljós að voru þrír talsins, voru skotnir til bana af viðbragðsaðilum. Þá var yfir 150 manns bjargað úr umsátrinu. Umsátrið hófst klukkan 21 að staðartíma þegar árásarmennirnir réðust inn á Intercontinental-hótelið í Kabúl. Fregnir bárust af því að mennirnir hefðu skotið öryggisverði á leið sinni inn á hótelið og svo hafið skothríð á hótelgesti. Fyrir nokkrum dögum síðan varaði bandaríska sendiráðið í Kabúl við hótelum í borginni vegna hryðjuverkaógnar. Enginn hryðjuverkahópur hefur þó enn lýst yfir ábyrgð á umsátrinu. Yfir 20 manns létust í árás Talíbana á Intercontinental-hótelið árið 2011.
Mið-Austurlönd Tengdar fréttir Skotárás á hóteli í Kabul Minnst fjórir menn hófu skotárás á Intercontinental hótelið í Kabúl fyrr í dag. 20. janúar 2018 23:17 Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent Val Kilmer er látinn Erlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Fleiri fréttir Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Sjá meira
Skotárás á hóteli í Kabul Minnst fjórir menn hófu skotárás á Intercontinental hótelið í Kabúl fyrr í dag. 20. janúar 2018 23:17