Af þeim tæplega 25 þúsund manns sem greiða eða hafa greitt iðgjöld til Eflingar á undanförnum 12 mánuðum eru aðeins rúmlega 16 þúsund á kjörskrá vegna stjórnarkjörs í stéttarfélaginu Eflingu.
Kjördagar verða 5. og 6. mars næstkomandi og kosið verður á skrifstofu félagsins í Guðrúnartúni 1 frá klukkan 9 til 16. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin og fer fram á sama stað.
Að sögn Magnúsar M. Norðdahl, formanns kjörstjórnar, geta ýmsar skýringar verið á því að mun færri eru á kjörskrá en greitt hafa félagsgjöld. Sú helsta er að greiðendur iðgjalda hafi ekki gengið formlega í félagið, en hluti þeirra gæti hafa hætt að vinna á starfssviði félagsins eða á starfssvæði þess á undanförnum mánuðum án þess að segja sig úr félaginu.
Þeir sem uppfylla skilyrði til að gerast fullgildir félagsmenn í Eflingu þurfa að fylla út sérstaka inntökubeiðni og undirrita með eigin hendi og afhenda á skrifstofu félagsins til að geta tekið þátt í stjórnarkjörinu. Ekki eru slíkar kröfur gerðar í öllum stéttarfélögum. Í VR teljast menn til dæmis til fullgildra félagsmanna eftir að hafa greitt iðgjöld í þrjá mánuði.
„Það verða inntökubeiðnir í bunkavís á kjörstað og ef menn eru ekki fullgildir þegar þeir koma á kjörstað þá bara fylla menn út slíka beiðni og atkvæði þeirra svo sett í umslag og í kassa fyrir utankjörfundaratkvæði,“ segir Magnús Norðdahl, formaður kjörstjórnar, og bætir við: „Það verður engum neitað um að kjósa sem á rétt á því.“
Þúsundir utan kjörskrárinnar

Tengdar fréttir

Efling þverneitar að afhenda B-framboði upplýsingar um félagsmenn
Sigurður Bessason segir um trúnaðarupplýsingar sé að ræða þrátt fyrir álit Persónuverndar.

Stjórn Eflingar leggur steina í götu Sólveigar Önnu
Sólveig Anna Jónsdóttir og félagar hennar í B-framboðinu eiga ekki uppá pallborðið hjá núverandi stjórn Eflingar.