Hjálmar Hallgrímsson, sitjandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í Grindavík, var kjörinn í fyrsta sæti í prófkjör flokksins í bænum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í dag. Sjö voru í framboði og greiddu 208 manns atkvæði í prófkjörinu.
Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum í Grindavík kemur fram að Hjálmar hlaut 180 atkvæði í fyrsta sætið. Birgitta Káradóttir, viðskiptafræðingur, kemur ný inn á listann í 2. sæti með 106 atkvæði, Guðmundur Pálsson, bæjarfulltrúi var í 3. sæti með 142 atkvæði, Jóna Rut Jónsdóttir, bæjarfulltrúi í 4. sæti með 125 atkvæði og Irmý Rós Þorsteinsdóttir, viðskiptafræðingur, í því 5. með 164 atkvæði.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá menn kjörna árið 2014 og er í meirihluta með Grindavíkurlistanum. Nú tekur kjörnefnd við og gerir tillögu að framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Grindavík fyrir komandi sveitastjórnakosningar.
