Skoðun

Brimrótið og baslið

Hildur Björnsdóttir skrifar
Klukkan er tæplega fimm síðdegis. Stelpurnar organdi í aftursætinu. Eðlilega. Þreyttar eftir langan leikskóladag og þurfa nú að fást við umferðarteppu – í brösulegt bland við andlega veðurteppta foreldra – sem auðvitað eru of seinir að sækja bróðurinn. Það á eftir að kaupa kvöldmat. Baða börnin. Þvo þvottinn. Hjálpa við heimanám. Hugleiða, hlaupa og hnoða súrdeig. Kúldrast svo með samviskubit yfir öllu því ókláraða.

Ungt fjölskyldufólk er undir álagi. Kröfur samfélagsins sligandi. Fólk oft nýkomið á vinnumarkað. Yfirleitt undirmenn og sjaldan í hátekjuhópi. Fjárhagsáhyggjur algengar. Það reynir að stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaði sem reynist mörgum ómögulegt. Fólk eignast sín fyrstu börn og aldrei eru nægilega margar klukkustundir í sólarhringnum. Streitan mikil og minnstu frávik setja allt úr skorðum.

Við foreldrar fáumst við vanda. Við treystum á tiltekna þjónustu. Við treystum á gæslu fyrir börnin okkar. Öðruvísi verðum við ekki þátttakendur á vinnumarkaði. Öðruvísi fjármögnum við ekki heimilisreksturinn. Þjónustan hefur brugðist í borginni. Börn verið send heim vegna manneklu með tilheyrandi afleiðingum fyrir vinnandi fólk. Ástandið hefur aukið enn á streitu foreldra.

Enn alvarlegri er vandi þeirra sem enga gæslu fá. Skortur er á dagforeldrum í borginni og leikskólavist nær ómöguleg hugmynd fyrir tveggja ára aldur. Fjölmargir foreldrar ílengjast frá vinnu eftir fæðingarorlof. Það er fjárhagslega íþyngjandi og ástandið bitnar oftar á kvenfólki. Þar hefur kynbundinn launamunur eflaust áhrif. Þennan vanda þarf að leysa. Það er aðkallandi jafnréttismál.

Við verðum að brúa bilið. Að fæðingarorlofi slepptu verða börn að eiga daggæslu vísa – og foreldrar að eiga val um daggæslukosti. Við verðum að efla bæði leikskólastigið og dagforeldrastigið. Leysa mannekluvanda leikskólanna og draga úr brottfalli dagforeldra. Þetta eru forgangsmál – og við munum kynna lausnir.

Það er mikilvægt að ungt fólk eigi málsvara í stjórnmálum. Málsvara sem þekkja þeirra daglega amstur – þekkja brimrótið og baslið. Fjölskyldulífið er auðvitað dýrð og dásemd. Það allra besta. En því fylgir álag. Aukum ekki enn á streitu foreldra. Ráðumst í aðgerðir. Leitum lausna. Gerum breytingar.

Höfundur skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×