
Langþreyta eftir lausnum
Nýjasta þjónustukönnun sveitarfélaganna dregur upp dökka mynd. Reykjavíkurborg fær falleinkunn. Höfuðborgin mælist hvergi í forystu. Reykvíkingar eru óánægðir. Ekki síst með leikskólana.
Við búum við breytta samfélagsmynd. Almennt sækja foreldrar af báðum kynjum nú vinnu utan heimilis. Færri sinna heimilisrekstri í fullu starfi. Börn eru yngri en áður þegar daggæslu gerist þörf. Skortur er á úrræðum og foreldrar lenda í vanda. Við þurfum víðtækar lausnir. Samræmt kerfi þar sem eitt úrræði tekur við af öðru.
Gera þarf breytingar á fyrirkomulagi fæðingarorlofs. Lengja þarf orlofið og hækka þarf þak á orlofsgreiðslur. Í kjölfar fæðingarorlofs leita margir til dagforeldra. Markvisst hefur fækkað í stéttinni og fjölmargir foreldrar endað án barnagæslu. Það skapar vanda við endurkomu á vinnumarkað. Sá vandi lendir oftar á mæðrum en feðrum. Efla þarf dagforeldrastéttina. Við þurfum átak í aðstöðumálum og stóraukna niðurgreiðslu til dagforeldra.
Vandi leikskólanna er ekki síður margslunginn og flókinn. Úr honum verður ekki ráðið á einni nóttu og sannarlega ekki með einni lausn. Ráðast þarf í sértækar skammtímaaðgerðir samhliða langtímalausnum.
Það er forgangsmál að fjölga leikskólakennurum. Við verðum að auka hlut faglærðra. Til þess þarf vitundavakningu og yfirgripsmikla kynningu á starfinu. Ekki síður þarf heildstæða endurskoðun á kjaramálum leikskólakennara. Við viljum 35 stunda vinnuviku og markvissar endurbætur á starfsumhverfi. Fjölgun faglærðra er mikilvægt verkefni - en það er langtímaverkefni - enda fimm ára ferli að útskrifa nýjan leikskólakennara.
Fimm ára þolinmæði er sjaldgæft fyrirbrigði. Leikskólabörn verða skólabörn að fimm árum liðnum. Foreldrar þurfa lausnir strax. Hvernig stendur til að leysa vanda reykvískra fjölskyldna næsta haust?
Mannekluvandi leikskólanna er aðkallandi verkefni. Við þurfum nýja hópa inn í starfið. Nýjar hugmyndir og óhefðbundnar lausnir. Til þess eru ýmsar leiðir færar. Virkja mætti unga sem aldna. Auka mætti hlut annarra fagstétta, til að mynda þeirra sem hlotið hafa menntun í listgreinum, tónlist eða íþróttum. Eins mætti kalla inn nemendur í leikskólakennarafræðum og stuðla að launuðu starfsnámi í stórauknum mæli. Til lengri tíma þarf þó alltaf fleiri faglærða.
Það er afhjúpandi að skoða aldursdreifingu fagmenntaðra á leikskólum. Tölfræðin sýnir að um 30% þeirra faglærðu mun hverfa á eftirlaun innan tíu ára. Án aðgerða mun vandinn einungis stóraukast. Með breytingum á lífeyriskerfinu mætti bjóða lífeyrisþegum áframhaldandi starf á leikskólum án skerðinga. Þannig mætti halda lengur í fagmenntað starfsfólk, framyfir hefðbundinn eftirlaunaaldur. Það yrði þó varla raunhæf lausn án yfirgripsmikilla breytinga á starfsumhverfi leikskólakennara. Álagið er hreinlega of mikið.
Við þurfum styttri biðlista og fleiri leikskólapláss. Þegar lausn finnst á mannekluvandanum má reisa nýja leikskóla og stækka þá sem fyrir standa. Með stórátaki getur mikill árangur náðst á nokkrum árum. Höfum þó ávallt hugfast að leikskólar marka fyrsta skólastigið – þeir eru ekki geymslur fyrir umkomulaus börn. Þá þarf að reisa af vandvirkni og fagmennsku.
Foreldrar hafa fengið nóg. Leikskólakennarar eru langþreyttir. Dagforeldrar flýja stéttina. Börn eru undir álagi. Við þurfum lausnir. Það þarf markvissar aðgerðir og afgerandi breytingar. Bæta þarf starfsumhverfi leikskólanna og fjölga faglærðu starfsfólki. Tryggja þarf öllum börnum pláss - og foreldrum val um daggæslukosti. Verkefnin verða flókin og fjárútlátin mikil - það er viðbúið – en þetta eru forgangsmál.
Höfundur skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Skoðun

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar

Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Og hvað svo?
Eyrún Birna Davíðsdóttir skrifar

Óboðlegt svar um ótæka stjórnsýslu
Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Sannleikurinn í tengdamömmumálinu
Ólöf Björnsdóttir skrifar

Hann breytti öllu – og gerði það með háði
Jónas Sen skrifar

Ekki fylla höfnina af grjóti
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Lengri útivistartími barna
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Við stöndum saman með íþróttafólkinu – en hvað með fólkið á bak við það?
Ingibjörg Isaksen skrifar

Að því að rjúfa vítahring kynslóðabundinna afbrota
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Flugan í ídýfunni
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir skrifar

Að mennta til lífs, ekki prófa
Sandra Sigurðardóttir skrifar

Það er kominn tími til...
Birgir Rúnar Davíðsson skrifar

Er EES samningurinn gagnlaus fyrir Ísland?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

Er píptest rót alls ills?
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vertu bandamaður kæri bróðir!
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Frá frammistöðuvæðingu til farsældar
Helga Þórey Júlíudóttir skrifar

Ísland á að verja með íslenskum lögum
Arnar Þór Jónsson skrifar

Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði
Logi Einarsson skrifar

Læknafélagið virðir ekki afstöðu félagsmanna sinna
Bjarni Jónsson skrifar

Göngum í takt
skrifar

Hverju lofar þú?
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar

Það er vá fyrir dyrum - Börnin okkar
Svava Þ. Hjaltalín skrifar

Hvert er eðli innflutningtolla? – Hvað er Trump eiginlega að gera? - Hverjir munu líða mest?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar