„Þetta eru örfáir starfsmenn sem ekki eru starfandi í húsi á meðan á framkvæmdum í Norðurturninum stendur. Þau hafa verið viðkvæm fyrir raskinu sem er í húsinu eftir Kirkjusandinn,“ segir Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóri Íslandsbanka.
„Það fellur til alls konar ryk og annað við framkvæmdirnar svo þeim er hlíft við að vera þar á meðan á framkvæmdum stendur. En þau eru væntanleg í hús núna á næstunni,“ segir Edda en bendir á að enginn þeirra hafi verið í veikindaleyfi vegna þessa, aðeins unnið annars staðar en í húsinu.

Nokkru síðar var tilkynnt um að bankinn myndi flytja höfuðstöðvar sínar og sameina starfsemi sína í Norðurturninum í Kópavogi. Þeir flutningar hófust á síðari hluta árs 2016 þegar fyrstu starfsmenn fluttust yfir en síðan stóðu flutningar yfir langt fram á árið 2017. Nú er svo komið að nær allir starfsmenn, ríflega sex hundruð talsins, eru komnir í Norðurturninn. Bankinn lækkaði virði á húsnæðinu að Kirkjusandi um 1,2 milljarða í reikningum árið 2016.
Birna Einarsdóttir útskýrði ákvörðunina á þann veg að engin leið væri að vita hvað yrði um húsið eða hvað skemmdirnar myndu kosta bankann. Íslandsbanki lagði síðar til að gömlu höfuðstöðvarnar á Kirkjusandi yrðu rifnar og hefur lagt inn beiðni til Reykjavíkurborgar um að hefja vinnu við að skipuleggja lóðina út frá því. „Við erum búin að láta þrjú sérfræðifyrirtæki skoða húsið og meta kostnaðinn við að ýmist gera það upp eða rífa það. Í framhaldinu var tekin ákvörðun um að það yrði of kostnaðarsamt að ráðast í viðgerðir, þar sem of miklar skemmdir voru á húsinu.“