
Rætin ummæli
Þarna fer talskonan með sérstaklega ósvífnar ósannar ásakanir á hendur samtökunum. Með ósannindum sínum snýr talskonan staðreyndum á haus. SÁÁ hefur frá upphafi samtakanna, fyrir rúmum 40 árum, þróað og bætt meðferðarstarfið sem var nánast ekkert í landinu fyrir stofnun samtakanna. Á ráðstefnu sem haldin var í tilefni af 40 ára afmæli samtakanna sl. haust komu margir af fremstu fíknarlæknum heims sem báru lof á meðferðarstarf og árangur SÁÁ. Þetta vita allir sem vilja vita og bera ekki annarlegar hvatir í brjósti til samtakanna, eins og augljóslega birtast í ummælum talskonunnar í viðtalinu.
Meðferðarstarf SÁÁ var lengst af leitt af Þórarni Tyrfingssyni lækni og menntuðum áfengis- og vímuefnaráðgjöfum og nú af Valgerði Rúnarsdóttur, sérfræðingi í fíknarlækningum. Um 25.000 manns hafa þegið meðferð á Vogi og öðrum meðferðarstofnunum samtakanna og flestir hafa fengið góðan bata. Árangurinn hefur vakið athygli í öðrum löndum.
Talskonan gagnrýnir menntun áfengis- og vímuefnaráðgjafa SÁÁ og líkir henni saman við eina önn í framhaldsskóla. Þessi samanburður er algjörlega út í hött og sýnir einungis hvað talskonan veit lítið um það sem hún er að tala um. Líklegra er þó að hún viti betur en kjósi að halda hinu ranga fram í viðleitni sinni til að skaða samtökin. Talskonur Rótarinnar hafa frá upphafi þeirra félags haldið uppi ósönnum og rakalausum óhróðri gegn SÁÁ í stað þess að beita sér fyrir því að ríkið geri skyldu sína í því að fjármagna þennan þátt heilbrigðisþjónustunnar sem áfengis- og vímuefnameðferð er. Það væri auðvitað hægt að gera mun betur í meðferðarstarfi SÁÁ fengjust nægir peningar til starfsins. Fjárskortur hefur alltaf takmarkað starfsgetu SÁÁ sem þó hefur unnið þrekvirki með gríðarlega góðum stuðningi almennings í landinu.
Höfundur er félagi í SÁÁ
Tengdar fréttir

Segir SÁÁ standa í vegi fyrir umbótum í meðferðarstarfi
Talskona Rótarinnar segir SÁÁ standa þróun og breytingum í meðferðarstarfi fyrir þrifum, menntun ráðgjafa sé ábótavant og einblínt sé um of á vandann sem fíknisjúkdóm í meðferðarstarfi.
Skoðun

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar