Skoðun

Nýir markaðir

Sigrún Jenný Barðadóttir skrifar
Páskabókin mín í ár var Blue Ocean Shift; Beyond Competing, eftir W. Chan Kim og René Mauborgne, og hvort sem þú ert að byrja rekstur eða hefur verið lengi í rekstri þá gæti hugmyndafræði Blue Ocean ef til vill gagnast þér. Byrjaðu á að greina umhverfið. Er iðnaðurinn vaxandi, staðnaður eða fer hann minnkandi? Er hráefnisverð hærra eða lægra en áður? Eru samkeppnisaðilar að stækka við sig, koma með nýjar vörur á markað og línur, ráða nýtt fólk eða að segja upp starfsfólki? Er eftirspurnin vaxandi eða minnkandi? Blue Ocean tekur mið af fyrrnefndum áhrifaþáttum sem áætlun fyrirtækja markast af, en tekur þeim þó ekki sem gefnum heldur einsetur sér að móta þá og skapa þannig nýja markaði með skapandi lausnum. Hugmyndafræðin setur sér að búa til nýja eftirspurn, skapa nýjan markað þar sem samkeppnin er engin, og í raun stækka þannig heildarkökuna.

Til að fyrirtæki vaxi verður að horfa til þeirra sem eru ekki viðskiptavinir. Hægt er að greina ekki viðskiptavini í þrjá hópa. Fyrsta stigs ekki neytendur sem eru til dæmis lítil fyrirtæki sem ákveða að vera enn án netverslunar. Annars stigs ekki neytendur eru til að mynda þeir sem ákveða að mála frekar stofuna eftir að hafa hugleitt veggfóður vel og vandlega. Þeir eru þá annars stigs ekki neytendur hjá veggfóðursfyrirtækjum. Þriðja stigs ekki neytendur gætu verið einstaklingar sem fara í banka og taka út pening til að greiða fyrir þjónustu og nota ekki greiðslukort. Þessi hópur er þá þriðja stigs ekki neytendur greiðslukortafyrirtækja.

Eiga þessir hópar ekki neytenda við þitt fyrirtæki? Þeir eru alls ekki „allir aðrir“ eins og margir virðast álíta. Íslensk fyrirtæki hafa hag af því að skoða þetta því undanfarin ár hefur bæði verið veruleg fjölgun á ferðamönnum til landsins og aukinn áhugi á íslenskum vörum erlendis. Neytendahegðun Íslendinga er einnig að breytast, til að mynda með netverslun. Fyrir vikið má reikna með að fjölmörg tækifæri séu fyrir íslensk fyrirtæki til að skoða hverjir eru ekki neytendur og vinna markvisst að því að ná til þessara neytenda.

Höfundur er meðeigandi Eimverks Distillery og félagskona í FKA 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×