Hlutverk Rannís er að veita stuðning við rannsóknir og nýsköpun, menntun, menningu og listir, æskulýðsstarf og íþróttir.
Nýi starfsmaðurinn var kynntur til leiks á miðvikudag og fólk upplýst um að hún tæki við starfi sérfræðings á mennta- og menningarsviði, væri menntaður afbrotafræðingur, en hefði annars enga reynslu á þessu sviði. Hinn nýráðni afbrotafræðingur hefði aðeins starfað á sambýlum í gegnum tíðina. Konan mætti svo til vinnu á fimmtudaginn þar sem hún fékk að kynnast starfsemi rannsóknarmiðstöðvarinnar og starfsfólki.

Það bætti svo gráu ofan á svart þegar starfsmaðurinn mætti á árshátíð stofnunarinnar á miðvikudaginn svo eftir var tekið.
„Hún mætti þarna með manninum sínum og þau bæði voru með leiðindi og vesen. Þau urðu bæði ölvaðri og ölvaðri eftir því sem leið á kvöldið,” útskýrir Auður og heldur áfram. „Þau duttu þarna um borð og stóla og hoppuðu stöðugt inn á myndir hjá fólki, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Auður, en hegðunin kom Auði hins vegar ekki í opna skjöldu líkt og flestum gestum árshátíðarinnar.
„Hjónin eru leikarar sem voru til í að taka þátt í þessu með okkur. Veislustjórinn tilkynnti um að konan væri ekki að koma til starfa hjá okkur og allir hlógu og tóku mjög vel í þetta,” segir Auður.
„Og fólk var ekki síst mjög ánægt með að ekkert hafi orðið af þessari ráðningu,“ segir Auður hlæjandi.