Þar vakti athygli spurning sem Einar Þorsteinsson, fréttamaður Ríkisútvarpsins, beindi til Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita Sósíalistaflokksins í Reykjavík.
Einar spurði Sönnu hvort þeir sem ætla sér að kjósa Sósíalistaflokkinn geti treyst framkvæmdastjóra flokksins, Gunnari Smára Egilssyni, sem Einar sagði hafa oftar en einu sinni skilið launafólk eftir kauplaust.
Einar kallaði Gunnar Smára formann flokksins í fyrstu en Sanna benti Einari á að Gunnar væri ekki formaður flokksins heldur framkvæmdastjóri.
Ítrekaði spurninguna
Einar tók hins vegar fram að Gunnar Smári væri sá sem hefði drifið starf Sósíalistaflokksins áfram og endurtók spurninguna, hvort kjósendur gætu treyst sósíalískum flokki sem velur Gunnar Smára til forystu.
„Hann er ekki í forystu flokksins. Það er ég, 26 ára gömul kona af blönduðum uppruna, ekki einhver fimmtugur karlmaður, eða ég veit ekki einu sinni hvað hann er gamall,“ sagði Sanna.
Einar benti á að Gunnar Smári væri stofnandi flokksins en Sanna sagði að hún væri einnig einn af stofnendum flokksins og fleiri hefðu komið að borðinu.

Áfram ítrekaði Einar spurninguna, hvort fólk gæti treyst sósíalískum flokki sem væri með mann í brúnni sem hefði skilið starfsfólk eftir launalaust.
„Hann er ekki formaðurinn, ég er oddvitinn. Ég er kona sem hef upplifað fátækt á eigin skinni. Ég þekki þetta. Ég berst fyrir því og allt annað fólk á lista. Hann er ekki einu sinni í framboði. Þannig að við erum upprisa hinna verst settu fyrir bættum kjörum. Við erum að koma fram með þessar raddir okkar í þessa umræðu og við ætlum að taka völdin, við ætlum að setjast við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar. Fólkið sem upplifir óréttlæti samfélagsins, það er að rísa upp og það er það sem framboðið okkar byggir á,“ sagði Sanna.
Almannatengillinn Karen Kjartansdóttir sagði Sönnu hafa svarað þessari spurningu afar vel og vildi meina að hún hefði pakkað Einari snyrtilega saman og þar að auki svarið Gunnar Smára rækilega af sér.
Sanna pakkaði Einari svo snyrtilega saman og sór Smára svo rækilega af sér. Mjög skemmtilegt. Bíð samt spennt eftir langlokureiðipósti GSE.
— Karen Kjartansdottir (@karendrofn) May 25, 2018
Hún svaraði vissulega vel (dró athyglina að sér) en það er fullmikið að segja að hún hafi pakkað honum saman.
— Gisli F. Valdorsson (@gislivaldorsson) May 25, 2018
Hann sagði Sönnu hafa flengt Einar Þorsteinsson og kallaði fréttamanninn spyril Sjálfstæðisflokksins. Vill Gunnar meina að Einar hafi reynt að fara í kosningabaráttu gegn sér og lýkur svo máli sínu með því að segja:
„Hvílíkur drullusokkur þessi drengur,“ skrifar Gunnar Smári.
Almannatengillinn Andrés Jónsson segir Sönnu hafa svarað þessari spurningu vel en vill ekki meina að spurningin hafi ekki átt rétt á sér.
„Fréttamenn eiga að spyrja að því sem þeir halda að fólk heima í stofu fýsi að vita. Hlutverk GSE í þessu framboði sósíalista er klárlega þar á meðal,“ skrifar Andrés.
Jú jú Sanna svaraði þessu vel en Einar Þorsteins er ekki þar með sagt réttnefndur sem forneskjuleg karlremba. Fréttamenn eiga að spyrja að því sem þeir halda að fólk heima í stofu fýsi að vita. Hlutverk GSE í þessu framboði sósíalista er klárlega þar á meðal :)
— Andres Jonsson (@andresjons) May 25, 2018