Tinni, hundur sjónvarpsmannsins Gísla Marteins Baldurssonar, vakti máls á því á Twitter hvort flokkarnir hefðu einhverja stefnu gagnvart hundum í Reykjavík og spurði hvort þeir lofuðu auknum réttindum, betri aðstöðu eða lægri hundagjöldum. Málefni hunda og hundaeigenda hafa ekki verið áberandi fyrir þessar kosningar.
Hvernig er það - eru flokkarnir með einhverja stefnu gagnvart hundum í Reykjavík? Aukin réttindi? Betri aðstaða? Lægri hundagjöld? @sjalfstaedis@xsreykjavik@VGRvk@vidreisn@PiratePartyIS@Midflokkurinn@framsokn#hundatwitterFélag ábyrgra hundaeigenda sendi fyrirspurn á flokkana sextán sem bjóða fram í Reykjavík um hver stefna þeirra væri varðandi málefni hunda í Reykjavík.
— Tinni (@aevintyritinna) May 23, 2018
„Við sendum á alla flokkana og við fengum bara svör frá fimm flokkum. Það segir kannski mikla sögu um hver áhuginn er,“ segir Rakel Linda Kristjánsdóttir, formaður Félags ábyrgra hundaeigenda.
Píratar eini flokkurinn sem er með mótaða, vel ígrundaða stefnu
Borgin okkar Reykjavík lýsti sig hlynnta hundahaldi í Reykjavík. Kvennahreyfingin sagðist ekki hafa mótað sér stefnu en sagðist að dýravelferð væri mikilvæg og að flokkurinn myndi móta sér skýra stefnu að kosningabaráttu lokinni. Svar Miðflokksins var á sömu lund. Píratar eru hins vegar með ítarlega stefnu um hunda og dýr almennt og var það eini flokkurinn sem gaf ítarlegt svar við fyrirspurninni.Píratar vilja bæta hundasvæði og hundagerði innan borgarmarkanna. Stofna dýraathvarf í samráði við þau félög sem nú sinna dýrum. Innleiða sérstaka Dýraþjónustu Reykjavíkurborgar, nýja stjórnsýslueiningu, sem beri ábyrgð á þjónustu og samskiptum við gæludýraeigendur, leyfisveitingum og framfylgd samþykkta borgarinnar um gæludýrahald. Samfylkingin segir að „bæta þurfi aðstöðu fyrir hunda og hundaeigendur og að hundaleikvellir eigi að vera til í öllum borgarhlutum." Aðrir flokkar svöruðu ekki.
Fáir staðir þar sem hundar geta spriklað án taums
Í sumum póstnúmerum í Reykjavík eru aðstæður fyrir hunda og eigendur þeirra mjög bágbornar. Ef við tökum póstnúmer 101 og 105 sem dæmi er eitt hundagerði út við BSÍ þar sem hundar geta spriklað frjálsir án taums. Þetta þýðir að margir hundaeigendur sleppa hundum sínum á Klambratúni, þvert á reglur, allavega þegar enginn sér til.Rakel Linda Kristjánsdóttir segir að hundar hafi verið algjör afgangsstærð fyrir þessar kosningar í Reykjavík. Aðstaða fyrir hunda sé víða mjög léleg. „Hún er bara skelfileg. Því miður þá höfum við hjá félaginu reynt að leiðbeina borgaryfirvöldum varðandi það sem betur má fara og það hefur bara ekki verið hlustað á okkur,“ segir Rakel.
Þetta sæti nokkurri furðu í ljósi þess hversu margir eigi hunda. „Við erum að tala um að meira en 20 prósent íbúa borgarinnar halda hund. Það eru ansi margir.“