Sigrún H. Pálsdóttir leiðir lista Íbúahreyfingarinnar og Pírata í Mosfellsbæ í sveitarstjórnarkosningunum.

Gegnsæi og greiður aðgangur kjörinna fulltrúa og íbúa að stjórnsýslunni, íbúaþátttaka og heilbrigð stjórnmálamenning eru málefni sem henni eru hugleikin. Í fræðslu- og skólamálum vill Sigrún bæta starfsumhverfi kennara og nemanda í leik- og grunnskólum og tónlistarskólanum og telur að heildræn samvinna á milli fagaðila í málefnum barna sé nauðsynleg. Hún telur að í Mosfellsbæ séu fjölmörg sóknarfæri á sviði félagsþjónustu, menningarstarfsemi, skipulagsvinnu, íþrótta-, útivistar- og umhverfismála en eitt brýnasta verkefni okkar í Mosfellsbæ er þó að aflétta neyðarástandi í húsnæðismálum ungs fólks og efnaminni.
„Ég sækist eftir umboði kjósenda til að beita mér áfram af fullum krafti fyrir velferð Mosfellinga, nú með liðsstyrk Pírata. Kjósendur vita að hverju þeir ganga með því að kjósa Í-listann.“
Mosavaxnar gígaraðir og hraunbreiður Skaftárhrepps.
Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Fyrir utan eigið sveitarfélag)
Eyrarbakka.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Kalkúnaskip frá Reykjabúinu með hátíðarsósu, waldorfsalati og öðru gómsæti.
Hvaða mat ert þú bestu/ur að elda?
Heilsteikt önd með fyllingu og appelsínusósu.
Uppáhalds „guilty pleasure“ lag?
Dancing Queen með ABBA.
Þegar ég var að þjóna til borðs hjá Rotary klúbbnum á Egilsstöðum og skvetti óvart heitri súpu í klofið á gesti fundarins.
Draumaferðalagið?
Frakkland.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Nei.
Besti hrekkurinn sem þú hefur gert eða lent í?
Sprautaði laxerolíu í appelsínu dönskukennarans í 7. bekk.
Hundar eða kettir?
Hundar.
Uppáhalds „guilty pleasure“ bíómynd?
Cowboy-myndir með Clint Eastwood.
Meril Streep
Í hvaða Game of Thrones ætt værir þú og af hverju?
Ég gæti hugsað mér að tilheyra Starksættinni. Hún er samfélagslega sinnuð.
Hefur þú verið tekin/n af lögreglunni?
Já.
Uppáhalds tónlistarmaður?
David Bowie.
Uppáhalds bókin?
Njála.
Uppáhalds föstudagsdrykkur?
Franskt kampavín.
Uppáhalds þynnkumatur?
Fiskisúpa.
Þegar þú ferð í fríið, sólarströnd eða menning?
Menning.
Hefur þú pissað í sundlaug?
Já.
Hvaða lag kemur þér í gírinn?
Heroes.
Bjöllulausir kettir á varptíma.
Á að banna flugelda?
Nei.
Hvaða landsliðsmaður í knattspyrnu værir þú og af hverju?
Birkir Bjarnason því hann er svo mikill hlaupagikkur.
Oddvitaáskorunin er hluti af kosningaumfjöllun Vísis. Öllum oddvitum á landinu býðst að taka þátt. Áhugasamir oddvitar geta verið í sambandi við samuel@stod2.is.