Persónuvernd hefur að gefnu tilefni beint tilmælum til leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila og íþróttafélaga um notkun á samfélagsmiðlum.
Er því beint til þessara aðila að nota ekki Facebook eða sambærilega miðla fyrir miðlun persónuupplýsinga um ólögráða börn. Gildir það bæði um viðkvæmar og almennar persónuupplýsingar.
Sé þörf talin á að miðla upplýsingum um ólögráða börn með rafrænum hætti er æskilegt að nota hugbúnað sem tryggir ábyrgðaraðilum fulla stjórn yfir þeim upplýsingum sem miðlað er. Tryggja þurfi að upplýsingum verði ekki miðlað til óviðkomandi aðila, þær verði ekki unnar í öðrum tilgangi en lagt var upp með og að öryggis þeirra sé gætt með fullnægjandi hætti.
