
Góðar eða slæmar fréttir koma eftir helgi: „Hefðum getað selt upp á tvenna tónleika“

Sena Live seldi um 30 þúsund miða á tónleika Ed Sheeran í gær og það á aðeins tveimur og hálfum tíma. Þegar uppselt var á tónleikana voru 15 þúsund manns enn í stafrænni biðröð. En hverjir eru möguleikarnir á aukatónleikum.
„Það var ekki hægt annað en í gær en að fara í það að skoða það og við erum alvarlega að skoða þetta. Það er ekkert lítið mál að henda í aukatónleika en ef við ætlum að gera þetta, þá þurfum við að ákveða þetta strax.“
Ísleifur segir að leiðinlegt hafi verið hversu margir þurftu frá að hverfa í gær.
„Það verður eitthvað að frétta frá okkur eftir helgi, hvort sem það verða góðar eða slæmar fréttir.“
Tengdar fréttir

Skoða möguleika á aukatónleikum með Ed Sheeran
Fimmtán þúsund manns, sem biðu eftir miðum, var vísað frá.

Þolinmæðin þrautir vinnur allar
Miðar á Ed Sheeran fara í sölu klukkan 9 en hægt verður að koma sér fyrir í stafrænu röðinni klukkan 8.

Sheeran hvergi bókaður daginn eftir tónleikana
Ísleifur Þórhallsson hjá Senu Live sagði í viðtali á Bylgjunni í dag vera í samskiptum við fólkið í kringum Ed Sheeran varðandi mögulega aukatónleika. Söngvarinn er hvergi bókaður daginn eftir tónleika hans á Laugardalsvelli.

Ed Sheeran hræðir ekki Fiskidagsfólk
Skiptir engu máli, segir framkvæmdastjórinn þó 30 þúsund hafi keypt miða á tónleikana á Laugardalsvelli sem verða sama dag og Fiskidagurinn mikli á Dalvík.

23 þúsund manns í biðröð þegar miðasalan hófst
Miðasala á eina stærstu tónleika Íslandssögunnar hófst klukkan 9 í morgun en breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran stígur á sviðið á Laugardalsvelli þann 10. ágúst.

Uppselt á Ed Sheeran
Ed Sheeran tónleikarnir sem fara fram 10. ágúst 2019 á Laugardalsvelli seldust upp með hraði í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu Live.