Nýtt félag EM0117, dótturfélag Arion banka, tók við þrotabúi Sameinaðs Silicons í mars og tók þar með yfir starfsleyfi og losunarleyfi verksmiðjunnar.
Þremur dögum fyrir gjaldþrot verksmiðju United Silicon, í janúar, tók Umhverfisstofnun afstöðu til úrbótaáætlunar félagsins, vegna útistandandi frávika, sem voru áberandi á stuttu starfstíma verksmiðjunnar.
Áætlunin miðaði við að ýmsum úrbótum er varðaði geymslu hráefna til vinnslunnar, ráðstöfunar framleiðsluúrgangs og frágangi lóðar áður en verksmiðjan yrði gangsett að nýju sem er ekki heimilt nema með skriflegri heimild Umhverfisstofnunar.
Átta mánuðir eru síðan United Silicon fór í gjaldþrot og síðan þá hefur lítil sem engin starfsemi verið á svæðinu og óvíst hvenær og þá hvort framleiðsla hefjist að ný. Hráefni til kísilframleiðslunnar er enn þá á svæðinu óvarin fyrir veðri og vindum.

„Við teljum að það sé lítil mengunarhætta fyrir hendi en hins vegar að þá geta verið einhverskonar óhreinindi sem geta skilað sér í jarðveginn,” segir Halla Einarsdóttir, verkfræðingur hjá Umhverfisstofnun.
Halla segir að framleiðsluúrgangurinn standist ekki útskolunarpróf og ströngustu kröfum um að efninu megi ráðstafa hvar sem er. Rekstraraðili verksmiðjunnar vinnur nú að því að koma efninu til urðunar í Álfsnesi, en áætlað er að um 2500 tonn af kolaryki sé að ræða.
Verksmiðjan hefur enn starfsleyfi og heldur Umhverfisstofnun uppi reglubundnu sem og fyrirvaralausu eftirliti á staðnum.

„Við erum í rauninni að fylgjast með þeirri áætlun. Þeir eiga eftir að skila aðeins betri verklýsingum, hvernig þeir ætla standa skil á ýmsum þáttum,” segir Halla.
Í þeim þáttum er lög áhersla á hættu á mögulegri mengun frá hráefnum, framleiðsluúrgangi og auka afurðum en auk þess að afgirðing lóða sé tryggð en brögð hafa verið á því að svæðið hafi staðið opið eftir að verksmiðjan fór í þrot.