Christian Ørsted stjórnunarráðgjafi fjallar um hvernig stjórnunaraðferðir okkar hafa þróast frá byrjun síðustu aldar, þar sem aðferðarfræði sem beitt var í hernaði var heimfærð á stjórnun fyrirtækja.
Þar var áherslan á að fá starfsmenn til að vinna meira.
„Í dag er þetta kallað að auka framleiðni og er það svarið við öllum vandamálum. En afleiðingin er meiri streita, ekki bara í vinnunni, heldur í þjóðfélaginu sem heild. Við missum alla sköpunargleði, hugmyndaríki minnkar og tilfinning okkar fyrir því sem skiptir máli dofnar,“ segir í tilkynningu frá HR um fyrirlesturinn.
Kraftur okkar til að taka þátt í samkeppni minnkar og við hlaupum hraðar og hraðar án þess að án að skapa þann ávinning sem við erum að sækjast eftir.Horfa má á beinu útsendinguna hér fyrir neðan.