Reynir Traustason, fyrrverandi ritstjóri DV, vakti athygli á málinu á Facebook-síðu sinni á föstudag. Þar segir hann konuna hafa verið kallaða á skyndifund eftir að hafa skilað inn sakavottorði þar sem brot hennar hafi komið fram en um var að ræða kaup á nokkrum grömmum af efninu til eigin nota. Konan hafi síðan verið beðin um að yfirgefa vinnustaðinn tafarlaust.
Í færslunni segir Reynir jafnframt að stúlkan sé á öðrum stað í dag, verandi ung móðir. Uppsögnin hafi því verið mikið reiðarslag. „Hún var rekin með skömm og hélt heimleiðis niðurbrotin. Umrædd kaup á kannabis áttu sér stað þegar stúlkan var 18 ára. Síðan er hún búin að eignast barn og líf hennar snýst um að framfleyta sér og barninu.“
Á ekki að refsa fólki fyrir glappaskot í bernsku
Í bréfi til bæjarstjóra og mannauðsstjóra Mosfellsbæjar segir Sveinn Óskar það vekja athygli að konan hafi starfað þar í tæplega tvo mánuði áður en að hafa verið sagt upp störfum þegar umrætt brot var ljóst á sakaskrá. Þá spyr hann hvort kallað sé eftir sakavottorðum annarra starfsmanna bæjarfélagsins með reglubundnum hætti og viðkomandi látinn sæta „síðbúnum refsingum“ líkt og í þessu tilviki.„Rétt er að gæta að því að margir bæta ráð sitt bæði hvað varðar vín og reykingar af ýmsu tagi þegar ungdómsárum sleppir. Má þar m.a. nefna fulltrúa frá Marítafræðslunni sem lengi vel hafa unnið afar göfuga vinnu við að upplýsa foreldra og börn um skaðsemi fíkniefna innan veggja skóla Mosfellsbæjar. Fólk, sem hefur í bernsku gert glappaskot, á ekki að sæta síðbúnum refsingum fyrir slíkt,“ skrifar Sveinn Óskar.
Þá fer hann jafnframt fram á að uppsagnarferlið verði reifað á næsta fundi bæjarráðs og gert grein fyrir ákvörðuninni. Hann segist óska eftir skýringum á málinu og segir það nauðsynlegt að þær verði rökstuddar í ljósi þess hve alvarlegur hlutur uppsögn er.
Ekki náðist í Svein Óskar við vinnslu fréttarinnar.