Norsku unglingaþættirnir Lovleg eru komnir inn á Stöð 2 maraþon í heild sinni en þættirnir minna á norsku unglingaþættina vinsælu Skam.
Þættirnir Lovleg eru glænýir þættir frá NRK í Noregi og fylgja eftir Gunnhildi sem flytur að heiman til að halda áfram skólagöngu sinni í bænum Sandane.
Þar leigir hún herbergi í íbúð ásamt þeim Söru, Peter og Alexander þar sem ýmislegt skrautlegt gengur á.
Í Noregi hafa þeir fengið góðar viðtökur og eru unglingaþættir af þessari tegund heldur betur að slá í gegn á Norðurlöndunum.
Fyrsta þáttaröðin er komin í heild sinni inn á Stöð 2 Maraþon og er von er á annarri þáttaröð fljótlega eftir áramót.
