
Allt þykir benda til þess að sveit sádiarabískra leigumorðingja hafi komið til Tyrklands til þess að ráða Khashoggi af dögum.
Í gær greindi tyrkneska dagblaðið Yeni Safak frá því að blaðamenn hefðu fengið að heyra hljóðupptöku þar sem ræðismaðurinn Mohammed al-Otaibi, sem nú hefur flúið land, heyrist segja við meinta banamenn Khashoggi: „Gerið þetta úti, þið eigið eftir að koma mér í vandræði.“
Á þá að hafa heyrst í einum banamannanna: „Ef þú vilt halda lífi við heimkomuna til Arabíu er þér hollast að halda kjafti.“
Yeni Safak greindi aukinheldur frá því, líkt og aðrir miðlar hafa gert, að Khashoggi hafi verið pyntaður og aflimaður áður en hann var loks myrtur. Sádi-Aröbunum er söguðu hann í sundur hafi verið ráðlagt að setja á sig heyrnartól og hlusta á tónlist til þess að þurfa ekki að hlýða á ópin.
Enn á eftir að gera rassíu á heimili ræðismannsins í Istanbúl. Suleyman Soylu, innanríkisráðherra Tyrkja, sagði við tyrkneska ríkismiðilinn Anadolu í gær að Sádi-Arabar hefðu tekið vel í beiðnina en að endanlegt samþykki hefði ekki enn fengist.
Háttsettur embættismaður innan sádiarabísku leyniþjónustunnar GIP hafði umsjón með aftökunni. Frá þessu greindi CNN, sem hefur rekið fréttastöð í Tyrklandi í tæpa tvo áratugi, í gær og hafði eftir þremur heimildarmönnum er eiga að þekkja til málsins.
Einn heimildarmannanna hélt því fram að þótt óljóst væri hvort Mohammed bin Salman krónprins, og í raun þjóðarleiðtogi, hefði fyrirskipað morðið væri deginum ljósara að krónprinsinn hljóti að hafa vitað af því að það stæði til að myrða Khashoggi.