Um fjörutíu mínútum síðar var annar ölvaður maður handtekinn við veitingahús í Grafarholti. Sá er grunaður um tálmun og ofbeldi gegn lögreglu en hann reyndi að hindra lögreglu við handtöku. Ekki liggur fyrir hvort um sama veitingahús var að ræða í málunum tveimur.
Ökumenn undir áhrifum ollu slysum
Eins og áður hefur komið fram var mikill erill hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt og eru fangageymslur á Hverfisgötu fullar eftir nóttina.Á sjötta tímanum í gær var tilkynnt um innbrot í bifreið í miðborginni en þaðan hafði verið stolið fjallgöngubúnaði.
Á áttunda tímanum var tilkynnt um umferðaróhapp móts við Úlfarsfell. Ökumaður annars bílsins er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var handtekinn og vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Hinn ökumaðurinn fann til eymsla í mjöðm og var fluttur til aðhlynningar á Slysadeild. Báðar bifreiðar voru fluttar af vettvangi með dráttarbifreið.
Skömmu fyrir klukkan tvö í nótt var tilkynnt um annað umferðaróhapp á Miklubraut við Kringlumýrarbraut. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur, of hraðan akstur og akstur mót rauðu ljósi. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og var að því búnu vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögrelgu.
Um klukkan fjögur í nótt var svo tilkynnt um þriðja umferðaróhappið í Hafnarfirði. Tjónvaldur var handtekinn grunaður um ölvun við akstur og vistaður í fangageymslu.
Þá sinnti lögregla málum vegna ofurvölvi manna í miðborginni í nótt auk þess sem nokkur fjöldi ökumanna var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.