Jean Claude Juncker hyggst láta af embættinu eftir kosningarnar sem fram fara í maí 2019.
Fulltrúar flokkanna, sem eiga aðild að EPP á Evrópuþinginu, komu saman í Helsinki og greiddu í dag atkvæði um hver skyldi verða þeirra forsetaefni þeirra. Stóð valið milli Weber og Alexander Stubb, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands. Weber hlaut örugga kosningu, 492 atkvæði gegn 127 atkvæðum Stubb.

Evrópski þjóðarflokkurinn er nú stærsti flokkurinn á Evrópuþinginu og benda skoðanakannanir til að líklegt sé að EPP, sem er hreyfing hægriflokka og kristilegra demókrata í Evrópuþinginu, muni áfram verða stærstir á Evrópuþinginu eftir kosningar.
Jafnvel að samstaða hafi náðst um Weber innan EPP og flokkurinn verði stærstur á Evrópuþingi, er þó á engan hátt víst að hann taki við af Juncker. Ástæðan er sú að margir leiðtogar aðildarríkjanna eru andsnúnir þeirri kröfu Evrópuþingsins að leiðtogaráðið verði að velja næsta forseta framkvæmdastjórnarinnar úr hópi þeirra kandídata sem flokkarnir á þinginu koma sér saman um til að tilnefna. Leiðtogaráðinu er þó ætlað að taka tillit til niðurstöðu kosninganna til Evrópuþingsins við val á næsta forseta.
Hinn 46 ára Weber er frá Bæjaralandi og er meðlimur Kristilegra demókrata í Bæjaralandi (CSU). hefur átt sæti á Evrópuþinginu frá árinu 2004 og verið leiðtogi þingflokks EPP á Evrópuþinginu frá 2014.
Timmermans kandídat Jafnaðarmanna
Þinghópur Jafnaðarmanna á Evrópuþinginu munu að öllum líkindum fylkja sér að baki Hollendingnum Frans Timmermans, einum varaforseta framkvæmdastjórnarinnar, á þingi sínu í Lissabon í næsta mánuði. Hópurinn er næststærsti þinghópurinn á Evrópuþinginu.