Skoðun

Burt með krónuna?  

Björn Berg Gunnarsson skrifar
Það kostar víst á fjórðu krónu að framleiða einn krónupening. Samtals eru 119 milljónir slíkra í umferð, sem þýðir að undir sófasessum landsmanna eru hátt í 500 tonn af peningum sem hæpið er að verði nokkru sinni notaðir. Það er erfitt að átta sig á nauðsyn þess að halda hér úti slíkri mynt og sama mætti væntanlega segja um 25 milljónir fimmkalla. En hvað með hitt klinkið og seðlana?

Seðlabanki Íslands sendi á dögunum frá sér áhugavert sérrit um rafkrónu þar sem meðal annars er rætt um stöðu reiðufjár á Íslandi. Þar er því haldið fram að þegar horft er fram veginn sé „líklegt að hlutdeild hefðbundins reiðufjár, að minnsta kosti í staðgreiðsluviðskiptum, fari minnkandi.“ Reynsla Dana sýni að börn og aldraðir séu helstu notendur reiðufjár þar í landi en aðrir séu móttækilegri fyrir öðrum greiðsluleiðum. Þetta hljómar alls ekki ólíklegt, en reiðufé er þó ekki einungis greiðslumáti heldur einnig geymslustaður fyrir verðmæti. Fáir geyma sennilega klink í stórum varasjóðum en 82% verðmætis lausafjár hér á landi er í formi 5.000 og 10.000 króna seðla. Reiðufé hefur sína kosti og galla sem sparnaðarform. Vissulega er það í ríkisábyrgð og tiltækt fyrirvaralaust, en það brennur stöðugt upp í verðbólgu og getur glatast.

Dagleg notkun reiðufjár í viðskiptum á sennilega styttra eftir en áhugi fólks á að geyma sparifé undir koddanum. Á endanum má þó reikna með að við hættum alfarið að nota reiðufé og þá er spurningin hvað tekur við. Seðlabankinn undirbýr sig með umræðu um rafkrónu sem valkost og það er gott að vita að útgefandi reiðufjár skoði af fullri alvöru hvað taki við.

Þegar rætt var um möguleika þess að innkalla 10.000 kr. seðla í fyrra fór allt í háaloft og ýmist var talað um aðgerðina sem nauðsynlega til að stemma stigu við svartri atvinnustarfsemi og örva einkaneyslu eða grófa skerðingu á rétti fólks til að geta átt óskráð viðskipti. Í næstu umferð verður umræðan vonandi yfirvegaðri.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×