Skoðun

Innherjar víða

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Fréttablaðið greindi í október frá skipan starfshóps með full­trúum forsætis- og fjár­mála­ráðu­neyt­is og Seðla­bank­ans. Starfshópurinn vann svokallaða sviðs­mynda­grein­ing­u vegna mögulegra áfalla í rekstri Wow Air.

Á mannamáli voru stjórnvöld að skoða hvaða afleiðingar gjaldþrot Wow hefði á þjóðarbúið. Niðurstöðurnar voru að gjald­þrot félagsins gæti leitt til að lands­fram­leiðsla drægist saman um tæp þrjú pró­sent og gengi krón­unnar gæti veikst um allt að 13 pró­sent á næsta ári. Til samanburðar gerði spá Hagstofunnar og Seðlabankans ráð fyrir 2,7 prósenta hagvexti og að gengi krónunnar héldist stöðugt. Fram kom að fall Wow gæti orðið til þess að útflutningur drægist saman um tíu prósent, verðbólga hækkaði um þrjú prósent – færi hátt í sex prósent – og að um 1.400 manns bættust á atvinnuleysisskrá. Þetta væri grafalvarleg staða.

Erfiðleikar Wow hafa verið til umræðu. Framangreindar upplýsingar lýsa hversu mikil áhrif áföll stórra fyrirtækja hafa á okkar litla hagkerfi. Vonandi tekst að koma rekstri íslenskra flugfélaga í skjól og verja þau mikilvægu störf sem þar eru unnin, og þau fjölmörgu afleiddu störf sem þau skapa.

Fjölmörgum spurningum er þó ósvarað þegar litið er yfir atburðarásina. Icelandair, sem hefur keypt Wow, er skráð félag í Kauphöllinni. Eigendur þess eru lífeyrissjóðir, fagfjárfestar og almenningur. Hjá skráðum félögum er gert ráð fyrir að allir sem hlut eiga að máli fái sömu upplýsingar á sama tíma. Var það svo?

Fréttablaðið greindi nýlega frá fundarhöldum um vanda flugfélaga, sem stjórnmálamenn og embættismenn tóku þátt í. Hvaða upplýsingar voru veittar á þeim fundum? Og hvaða upplýsingar hafði starfshópurinn sem vann sviðsmyndagreininguna?

Forsætisráðherra ræddi kaup Icelandair á Wow í viðtali í vikunni og sagðist ekki geta sagt að þetta hefði komið sér á óvart og auðvitað „höf­um við fylgst grannt með þess­um mál­um um nokk­urt skeið“.

Forsætisráðherra verður að upplýsa hvaða upplýsingar hún hafði. Kaupin komu almennum fjárfestum á óvart, en ekki forsætisráðherra. Hlutabréf Icelandair hækkuðu um tæplega 40% á dagsparti. Hverju hafði forsætisráðherra fylgst svona grannt með? Hafði ríkisstjórnin meiri upplýsingar en eigendur fyrirtækisins? Forsætisráðherra segir „við“. Hverjir eru við? Getur verið að innherjaupplýsingar hafi verið meðal fólks sem ekki var skráð sem innherjar? Af fréttum er ljóst að ekki ber öllum saman um aðdraganda og tímalínu kaupanna. Það er umhugsunarefni. Hluthafar Iclandair hljóta að spyrja af hverju opið var fyrir viðskipti með bréf félagsins að morgni 5. nóvember í ljósi þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir.

Seðlabankinn tók þátt í sviðsmyndagreiningunni. Bankinn hafði gert ráð fyrir stöðugu gengi íslensku krónunnar í náinni framtíð. Íslenska krónan hefur hins vegar fallið eins og steinn samfara vinnunni við úrlausn vanda flugfélaganna. Því er eðlilegt að spyrja: Var veiking íslensku krónunnar hluti af björgunaraðgerðum stjórnvalda? Frá ágústbyrjun hefur gengi krónunnar fallið yfir 10%. Var það ákvörðun stjórnvalda að fella gengi íslensku krónunnar?




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×