Strákarnir okkar fengu algjöran hvíldardag í gær sem var ansi kærkominn. Þeir eru búnir að spila undir brjáluðu leikjaálag sem er eitthvað sem Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, er ósáttur við. Hann vill að handboltahreyfingin fari að tala um þetta en hann virðist vera einn af þeim fáu sem eitthvað þorir að segja.
„Það eru allir þjálfararnir sammála um þetta en það er þannig að enginn gerir neitt og fáir segja neitt. Ég er einn af fáum sem hefur verið að benda á þetta. Það er eins og sumir séu hræddir við að tjá sig eins og þeir telja sig í hættu að fara í ónáð einhversstaðar. Mér er bara alveg sama um það af því að ég held að ég sé að benda á þarfa staðreynd. Það er mikilvægt að þessu verði breytt á næsta móti,“ segir Guðmundur

„Ég er mjög hissa á þessu verð ég að segja. Bara til dæmis erum við búnir að spila sex leiki á átta dögum frá sunnudegi til sunnudags. Það sér það hver maður að þetta er algjörlega glórulaust. Ég kalla bara eftir því að menn fari að hugsa um heilsu leikmannanna vegna þess að það er ekki hægt að bjóða upp á þetta“ segir Guðmundur.
Það sér ekki fyrir endann á þessari vitleysu því fjölga á liðum úr 24 í 32 fyrir næsta heimsmeistaramót og ekki er verið að lengja gluggann sem mótið er spilað í.
„Það sem ég held að hafi gerst er að félagsliðin eru að setja landsliðunum þrengri skorður og þá er verið að pakka þessu öllu saman á enn styttri tíma. Það er hluti vandans. Menn verða að horfa á þetta í samhengi. Það er ekki betra fyrir leikmenn félaganna að spila svona marga leiki á stuttum tíma. Það er bara verulega slæmt,“ segir Guðmundur Guðmundsson.