„Þarna fara leiðtogahæfileikar, reynsla og bara menn sem setja gott fordæmi. Þetta eru leikmenn sem berjast harðar en allir og gera allt eins vel og þeir geta. Svona er þetta á hverri einustu æfingu. Þeir eru alltaf jafn einbeittir. Við höfum oft talað um að yngri leikmenn þurfi að fylgja þeirra fordæmi þegar kemur að undirbúningi fyrir hverja einustu æfingu.“
Svo mörg voru þau orð hjá landsliðsþjálfaranum Craig Pedersen sem stýrir Jóni og Hlyni í síðasta sinn á fimmtudagskvöldið.

Koma aldrei aftur
En, hvað segja strákarnir sem hafa barist með þessum hetjum á parketinu undanfarin ár? Martin Hermannsson er náttúrlegur arftaki Jóns Arnórs sem er leikmaður sem mótaði okkar fremsta körfuboltamann í dag.„Þarna eru að fara tveir af fremstu körfuboltamönnum okkar allra tíma. Þetta eru menn sem eru búnir að gefa líf og sál í þetta í einhver fimmtíu ár liggur við. Við eigum eftir að átta okkur á því þegar að þeir eru farnir hvað þeir gera mikið bæði inn á vellinum og fyrir utan. Þetta er fyrirliðinn okkar og svo besti íslenski körfuboltamaður allra tíma. Það er skrítið að hugsa út í það, að þeir komi aldrei aftur,“ segir Martin.
„Jón Arnór hefur alltaf verið mín stærsta fyrirmynd. Það sést á mér á vellinum hvernig ég hreyfi mig. Maður er alltaf að reyna að herma eftir skotunum hans og varnarleiknum. Ég er bara stoltur af því að hafa lært af honum.“

Tveir durgar
Á sama tíma og Martin reynir að líkjast Jóni Arnóri tekur risinn úr Bárðardalnum, Tryggvi Snær Hlinason, við aðalhlutverkinu undir körfunni af Hlyni Bæringssyni þar sem hann er búinn að djöflast við sér mun stærri menn í tæpa tvo áratugi.„Bara að sjá þennan bardagamann. Þó að hann sé orðinn eldri núna er ótrúlegt að sjá hvað hann berst og getur gert. Það er ótrúlegt að sama á móti hverjum hann spilar er hann alltaf Hlynur. Hann er alltaf traustur,“ segir Tryggvi sem er mun stærri en Hlynur en hefur lært mikið þegar kemur að hjarta og baráttu af landsliðsfyrirliðanum.
„Ég hef oft horft upp til Hlyns, sérstaklega þegar kemur að baráttu og ég tel mig ekki enn þá vera kominn nálægt honum. Ég vil komast það hátt að ég geti sagt að ég berjist jafn mikið og Hlynur. Hlynur er með alvöru íslensku baráttuna eins og Jón Arnór. Þeir eru báðir durgar sem eru alltaf í bardaga og alltaf harðir,“ segir Tryggvi Snær Hlinason.
Alla fréttina úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá hér að neðan.