Skoðun

Val neytenda

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Þegar landsmenn bregða sér til annarra landa sjá þeir iðulega af hverju þeir eru að missa hér á landi í matarúrvali. Sumir ráða ekki við sig þegar þeir sjá allt það sem þar fæst á hagstæðu verði og láta sér ekki nægja að háma í sig erlent kjöt og fleira góðgæti, heldur setja í ferðatöskur sínar til að taka með heim. Um leið rúmar hugurinn ekki alltaf þá hugsun hvort íslensk lög leyfi slíkan flutning. Þessir ferðalangar eiga sér vissar málsbætur og þær helstar að það eru svo mörg furðuleg og skrýtin boð og bönn á Íslandi að ekki er alltaf hægt að muna eftir þeim öllum.

Þegar heim kemur eru ýmsir stoppaðir í tollinum með góssið sem er umsvifalaust gert upptækt. Þannig hefur ósoðið kjöt lent í ruslinu í stað þess að rata á borð ferðalangsins. Einhverjir sleppa þó og gæða sér á matvöru sem samkvæmt skilgreiningu íslenskra yfirvalda á að vera þeim hættuleg. Engar sérstakar fréttir berast af því að viðkomandi lögbrjótar, sem eru stór hluti landsmanna, hafi veikst hastarlega.

Nú hefur Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, lagt fram frumvarp sem heimilar innflutning á fersku kjöti, eggjum og vörum úr ógerilsneyddri mjólk. Íslenskir neytendur sjá þannig fram á aukið vöruúrval með tilheyrandi samkeppni. Þeir ættu samt ekki að fagna of snemma. Andstæðingar frumvarpsins eru að setja sig í stellingar en þeir telja ekki einungis að slíkur innflutningur ógni sérhagsmunum íslensks landbúnaðar heldur muni hann einnig eiga eftir að valda stórfelldu heilsutjóni meðal þjóðarinnar. Þeir sem lengst ganga í þeim áróðri spara ekki stóru orðin. Rifja má upp orð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar fyrir örfáum árum en hann hélt því fram að ef menn borðuðu erlent kjöt sem væri ekki nógu vel eldað ættu þeir á hættu að fá sýkingu sem gæti leitt til breytingar á hegðunarmynstri. Orðrétt sagði Sigmundur Davíð: „Þannig að menn hafa jafnvel velt upp þeirri spurningu og rannsakað hvort þetta kunni að breyta hegðun heilu þjóðanna.“

Eins og kunnugt er stofnaði Sigmundur Davíð heilan stjórnmálaflokk í kringum sjálfan sig. Í engum íslenskum stjórnmálaflokki er jafn mikil foringjadýrkun og í Miðflokknum þannig að auðvelt er að geta sér þess til að þingmenn flokksins muni fara hamförum gegn frumvarpi landbúnaðarráðherra. Önnur afturhaldsöfl á þingi, og nóg er af þeim, munu gera slíkt hið sama.

Engin ástæða er til að kvíða því að heilsu þjóðarinnar muni hnigna illilega verði leyfður hér innflutningur á fersku kjöti, enda verður sú vara heilbrigðisvottuð frá því landi sem hún kemur frá.

Hér á landi hefur of lengi verið látið eins og viðskiptahindranir séu bæði sjálfsagðar og eðlilegar. Þær eru það ekki. Neytandinn á sinn rétt og valið á að vera hans. Þegar frumvarp landbúnaðarráðherra kemur til afgreiðslu á þinginu munu þingmenn vonandi bera gæfu til þess að standa með samkeppni, gegn viðskiptahindrunum, og setja hagsmuni neytenda í forgrunn, eins og vera ber.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×