
„Nú 10 mánuðum síðar hefur ráðherra ekki enn skrifað undir staðfestingu þrátt fyrir að Minjastofnun hafi sent inn sína umsögn og mælt með staðfestingu. Þessi töf hefur hamlað skipulagsvinnu á Borðeyri og uppbyggingu ferðaþjónustu í Hrútafirði. Byggðarráð harmar þessi vinnubrögð og hvetur ráðherra til að klára málið hið fyrsta,“ segir í bókun byggðarráðs um málið.
Guðný Hrund Karlsdóttir er sveitarstjóri í Húnaþingi vestra. Hún segir þessa bið bagalega. „Það er alveg ljóst að á meðan við fáum ekki staðfestinguna þá getum við ekki farið í nauðsynlega deiliskipulagsvinnu og annað sem snertir svæðið. Hér er um að ræða einn merkasta verslunarstað landsins í aldir og því mikilvægt að byggja upp ferðaþjónustu og annað í kringum Borðeyri,“ segir Guðný Hrund. Markmið laga um verndarsvæði í byggð var að stuðla að vernd og varðveislu byggðar sem hefur sögulegt gildi hér á landi og var samþykkt árið 2015. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, mælti fyrir þessu lagafrumvarpi og barðist fyrir því að hægt væri að skilgreina merk svæði sem verndarsvæði þótt þau væru í byggð.