
Lygalaupar á hlaupum
Hlauparar sem hafa gert útiskokk að lífsstíl ljóma gjarnan upp í hvetjandi brosi þegar við þá er ámálgaður áhugi á að taka upp þetta atferli. Það stendur þá hvorki á vinsamlegum ráðleggingum né stuðningi. „Mikilvægt að byrja rólega,“ er það sem er sagt fyrst. „Finna sitt tempó.“ „Hafa gaman af þessu.“ „Njóta, en ekki þjóta.“
Nesti og nýir hlaupaskór
Og svo segja þessir hlauparar oft: „Þetta verður ekkert mál. Svo skellirðu þér bara í 10 kílómetrana í Reykjavíkurmaraþoninu. Þú verður enga stund að koma þér í form.“ Já, já, einmitt. Taktu því rólega fyrst—en svo þarftu að komast í form og hlaupa 10 km, hálfmaraþon, maraþon, Laugavegshlaup, últramaraþon. „Þú verður enga stund að koma þér í form.“ Og á bak við þessi hvatningarorð verður strax óþægileg pressa. „Ef þú ert að þessu á annað borð, þá er eins gott að vera að keppa.“
Og með þessi ráð í nesti, og nýja hlaupaskó á fótunum, hefjast æfingarnar. Þá er enginn til að hvetja mann áfram. Það er bara gangstéttin, rigningin, rokið eða sólin, lognið og maður sjálfur einn með sinn metnað og vilja til þess að sýna og sanna fyrir sjálfum sér og heiminum að maður geti þetta eins og allir aðrir. Og fyrir þá sem hafa verið duglegir að spara sér sporin eru fyrstu „æfingarnar“ eins og ísköld vatnsgusa. Það að hlaupa 10 kílómetra virðist eins fjarlægur raunveruleiki og að geta stokkið yfir 10 metra í langstökki. Meira að segja fimm kílómetrar virðast óyfirstíganlegir. Maður er orðinn undarlega úrvinda á innan við kílómetra. „Það verður ekkert mál að koma þér í form.“ Einmitt það já.
Ósannindi eða lygar
Kannski er það rétt sem mig hefur alla tíð grunað—að ég sé alveg einstaklega illa fallinn til þess að stunda hlaup. Mín reynsla af því að byrja að reyna að hlaupa—eftir margra áratuga kyrrsetu, reykingar, sælgætisát og almennt hóglífi—er einmitt ekki að það sé „ekkert mál“ eða að það sé eitthvað annað en sturluð hugmynd að skrá mig í 10 kílómetra hlaup. Um leið og ég byrja að skokka, þá byrja ég að bíða eftir að geta hætt. Það er ekki taug eða fruma í líkama mínum sem hefur eina einustu trú á því að ég muni nokkru sinni ná að hlaupa fimm kílómetra, hvað þá meira. Og þá hugsa ég að það megi fara til fjandans allt það lygahyski sem er í samsæri um að halda fram þessari þvælu um að „allir geti hlaupið“ og að maður eigi bara að „hafa gaman af þessu“. Já, hafið þið bara gaman af ykkar tilgangslausa skokki og ég skal hafa gaman af því að láta draga neglurnar af fingrunum á mér. Er það lygi hjá öllu þessu hlaupaliði að það sé „ekkert mál“ að koma sér í form? Það eru vissulega ósannindi—en eru það lygar?
Sársaukinn gleymist
Eftir að hafa harkað af mér nokkuð mörg örfárra kílómetra skokk yfir margra mánaða tímabil fór nefnilega eitthvað að gerast sem ég átti ekki von á. Smám saman virðist það hafa virkað sem allir sögðu að myndi virka. Ég fór að nálgast staðinn sem allir sögðu að „tæki enga stund“ að komast á. Að geta hlaupið nokkra kílómetra, jafnvel allt undir tíu, og farið að hafa gaman af því. Reyndar eru hlaupin lúshæg; en þetta er betra en ég átti von á og ánægjulegt að sjá að þrátt fyrir yfirgnæfandi lélega burði til langhlaupa þá sé hægt að bæta sig ögn.
Og kemur þá að þessu með lygarnar og ósannindin. Í staðinn fyrir að vera stoltur af því að hafa þraukað í gegnum langan tíma þar sem enginn árangur virtist vera að nást, finn ég að ég byrjaði sjálfur að sannfærast um að þetta hefði í raun og veru ekki verið neitt mál. Ég einfaldlega man ekki eftir því hversu erfitt og vonlaust mér fannst þetta allt saman fyrir ári síðan. Það eina sem bjargar mér frá algjörri veruleikafirringu er nákvæm skráning á hlaupunum frá upphafi. Ég get séð framfarirnar á pappír þótt mér finnist í raun eins og ég hafi alltaf verið á nákvæmlega þeim stað sem ég er núna.
Svona virkar margt sem krefst fyrirhafnar en er þó þess virði. Foreldrar sem berjast í gegnum fyrstu ár barna sinna vansvefta og pirraðir gleyma því öllu algjörlega og líta til baka til tímans sem algjörs sælutímabils. Hér er það sama á seyði. Þetta er hluti af blekkingunni sem gerir mannfólkinu kleift að leggja á sig erfiði í dag til þess að njóta ávaxtanna síðar.
Árangurinn lifir
Allar erfiðu æfingarnar sem íþróttamenn leggja á sig gleymast þegar þeir ná árangri. Púlið við að læra fyrir erfið próf, eða að reyna að skilja flókna hluti virkar rómantískt og skemmtilegt eftir á. Og þekking, skilningur og færni sem maður öðlast með miklum harmkvælum og álagi virðist augljós þegar maður hefur náð almennilegu valdi á henni. Og það sem meira er; maður getur ekki ímyndað sér að þekkingin hafi ekki alltaf leikið í höndunum á manni.
Þeir sem hafa náð árangri á einhverju sviði—hvort sem það eru hlauparar, stærðfræðingar eða listafólk—vanmeta oftast vinnuna og erfiðið sem þeir hafa lagt á sig. Þeir eru ekki óheiðarlegir, og eru hvorki að ljúga að sjálfum sér né öðrum—þeim einfaldlega finnst af algjörri einlægni þeir ekki hafa þurft að leggja svo á sig; þekkingin og getan hafi alltaf verið til staðar.
Þetta er ágætt að hafa í huga núna á vormánuðum þegar margt kyrrsetufólk er byrjað að velta fyrir sér skráningu í Reykjavíkurmaraþon. Það eru vissulega ósannindi að það sé „ekkert mál“ að koma sér í form—en þó er það ekki lygi heldur. Þetta er bara erfitt á meðan á því stendur, en ekkert mál þegar það er afstaðið.
Skoðun

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar